Search
Close this search box.

Ályktanir flokksráðs 24. – 25. ágúst 2012

Samþykkt:

Ályktun til stuðnings Pussy Riot

Flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs fordæmir framgang rússneskra stjórnvalda gagnvart aðgerðasinnunum Pussy Riot sem hlotið hafa tveggja ára dóm fyrir friðsamleg mótmæli. Þessi valdbeiting er aðför að tjáningarfrelsi og brýtur í bága við þau grundvallar mannréttindi sem eiga að einkenna nútíma samfélög.

Ályktun um samskipti Íslands við aðrar þjóðir eða þjóðabandalög

Vinstrihreyfingin – grænt framboð leggur áherslu á að móta sjálfstæða íslenska utanríkis- og friðarstefnu. Vinstrihreyfing grænt framboð telur að grundvöllur alþjóðlegs samstarfs í samfélaginu eigi að vera lýðræðisleg vinnubrögð og barátta fyrir friði og öryggi í heiminum. Vinstrihreyfingin-grænt framboð leggur áherslu á að efla samstarf Íslands við aðrar þjóðir á grundvelli jafnréttis og gagnkvæmar virðingar. Vinstrihreyfingin grænt framboð leggur áherslu á sjálfsákvörðunarrétt þjóða og félagslega hnattvæðingu sem horfir fyrst og fremst til félagslegra tengsla þegar ákvarðanir í alþjóðasamskiptum eru teknar.

Til þess að Ísland geti tekið fullan þátt í alþjóðasamstarfi á næstu árum þarf að fara fram umræða um hvernig slíku samstarfi á að vera háttað, hvaða hagsmuni ber að verja og hvaða hagsmunir eru til þess fallnir að styrkja tengsl Íslands við alþjóðasamfélagið. Flokksráð VG fagnar þeirri umræðu sem nú fer fram um samskipti Íslands og ESB og hvetur til að henni verði haldið áfram.

 

Ályktun gegn takmörkun tjáningafrelsis


Flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar –græns framboðs leggur til að hafin verði vinna við endurskoðun á þeim ákvæðum íslenskra laga sem varða þau sjálfsögðu mannréttindi að mótmæla. Dæmi um forneskjuleg lög sem enn eru í gildi er 95. grein almennra hegningarlaga sem bannar svokallaða smánun á erlendu ríki sem og 125. grein almennra hegningarlaga sem banna guðlast.

Það er grundvallaratriði að á Íslandi ríki tjáningarfrelsi og að ekki sé hægt að beita úreltum lögum fyrir sig í tilraun til þöggunar. Ísland vill verða brautryðjandi á sviði mannréttinda og endurskoðun laganna gæti verið lykilskref í þá átt.

Ályktun um auglýsingar á stöðum hjá hinu opinbera

Flokksráðsfundur VG, haldinn á Hólum í Hjaltadal dagana 24. til 25. ágúst 2012, áréttar að jafnan skuli auglýsa stöður hjá hinu opinbera, í samræmi við opna stjórnsýsluhætti.

 

 

Tillaga að ályktun um rafmagnssæstreng

Flokksráðsfundur VG haldinn 24.-25. Ágúst 2012 varar við framkomnum hugmyndum um lagningu rafmagnssæstrengs mili Íslands og Skotlands. Jafnvel þó að slík sæstrengslögn væri tæknilega möguleg þá myndi fjárfesting af þeirri stærðargráðu kalla á stórfellda rányrkju á íslenskum orkuauðlindum og stórhækkun á raforkuverði innanlands.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search