Search
Close this search box.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson

Félagsmála- vinnumarkaðsráðherra og varaformaður VG.

Fæddur á Brúarlandi á Mýrum 28. mars 1977. Foreldrar: Guðbrandur Brynjúlfsson (fæddur 30. apríl 1948) og Snjólaug Guðmundsdóttir (fædd 14. nóvember 1945).

Stúdentspróf MA 1997. Hússtjórnarpróf frá Hússtjórnarskólanum í Reykjavík 1997. BSc-próf í líffræði frá HÍ 2002. Mastersgráða í umhverfisfræðum frá Yale-háskóla í Bandaríkjunum 2006.

Rannsóknir á vegum líffræðideildar HÍ 1999–2000 og Veiðimálastofnunar á Hólum í Hjaltadal sumrin 2000–2002 og 2004–2005. Landvörður á Þingvöllum 2003. Stundakennari í nokkrum námskeiðum við Háskóla Íslands, Landbúnaðarháskóla Íslands og Háskólasetur Vestfjarða á árunum 2006–2017. Starfaði hjá Landgræðslu ríkisins við alþjóðamál og rannsóknir 2006–2008 og hjá Stofnun Sæmundar fróða, Háskóla Íslands, við rannsóknir og verkefnastjórnun 2008–2011. Landvörður í Vatnajökulsþjóðgarði 2009–2011 og 2014. Umsjónarmaður meistaranáms í umhverfis- og auðlindafræði hjá HÍ á vorönn 2010. Framkvæmdastjóri Landverndar 2011–2017.

Í stjórn Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs 2007–2009. Tók þátt í að stofna Félag umhverfisfræðinga á Íslandi, fyrsti formaður félagsins 2007–2010. Formaður Félags Fulbright-styrkþega á Íslandi 2017–2018.

Umhverfis- og auðlindaráðherra frá 2017 til 2021.

Varaformaður VG frá október 2019.

Þingmaður Suðvesturkjördæmis frá september 2021

Félagsmála- vinnumarkaðsráðherra frá nóvember 2021

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search