Search
Close this search box.

Deildu 

Vinstri græn á Vestfjörðum boða til opins fundar á Hótel Ísafirði, laugardaginn 22. júní kl 14. 

Þingmennirnir Lilja Rafney Magnúsdóttir, Ari Trausti Guðmundsson, Ólafur Þór Gunnarsson og Kolbeinn Óttarsson Proppé ræða atvinnumálin, umhverfismálin og velferðarmálin – þingveturinn, framhaldið og stefnuna.

Tilvalið að mæta og fá innsýn og taka þátt í umræðum um málefni fjórðungsins sem eru þeim svo vel kunn.

Klukkan 13:30 þann sama dag og á sama stað verður aðalfundur svæðisfélagsins haldinn og eru nýir og eldri félagar hvattir til að mæta. Venjuleg aðalfundarstörf.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search