41% félaga á kjörskrá Vg í Norðvesturkjördæmi höfðu kosið í hádeginu í dag, þegar kosningin er hálfnuð. Forvalinu lýkur klukkan 17.00 annað kvöld og er úrslita að vænta í kvöldfréttum. Nú hvetjum við alla félaga sem þekkja til í Norðvesturkjördæmi að minna þá sem eiga eftir að kjósa í forvalinu að FARA INN Á HEIMASÍÐU VG OG KJÓSA með rafrænu skilríkjunum sínum og sækja sér aðstoð til þess ef á þarf að halda. Hver sem er má aðstoða kjósanda í rafrænu forvali. Sigríður Júlía Brynleifsdóttir og Bjarki Þór Grönfeldt í kjörstjórn eru til taks ef spurningar vakna varðandi kosninguna. Björg Eva og Hreindís á skrifstofu Vg eru það líka. Þetta er þriðja forvalið í Vg fyrir alþingiskosningarnar 25. september. Tveir frambjóðendur sækjast eftir fyrsta sætinu, Lilja Rafney Magnúsdóttir, alþingismaður og Bjarni Jónsson, sveitarstjórnarmaður. Alls taka átta þátt í forvalinu um fimm efstu sætin í Norðvesturkjördæmi.
Upplýsingar
Kosningamiðstöðvar
Suðurlandsbraut 10, Rvk Brekkugata 7, Akureyri