Search
Close this search box.

Söfnun birkifræja fyrir endurheimt birkiskóga og kolefnisbindingu ýtt úr vör

Deildu 

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, hleyptu af stað söfnun á birkifræi á Bessastöðum í gær á Degi íslenskrar náttúru. Söfnunin er liður í átaki Skógræktarinnar og Landgræðslunnar til að auka útbreiðslu birkiskóga en talið er að þeir hafi þakið a.m.k. fjórðung landsins við landnám.

Markmið átaksins er að endurheimta birkiskóglendi og vistkerfi þess en með því næst margþættur ávinningur. Á rýru landi er gjarnan losun kolefnis því þar er gamall jarðvegur enn að rotna. Þegar landið klæðist birkiskógi stöðvast þessi losun og kolefnisbinding hefst í staðinn.

Birkifræinu verður dreift á völdum svæðum í öllum landshlutum. Nánari upplýsingar um hvernig best er að tína fræ, varðveita og dreifa er að finna á vefnum birkiskogur.is.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search