Search
Close this search box.

500 milljóna viðbótarframlag til COVAX

Deildu 

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tilkynnti í dag um 500 milljón króna viðbótarframlag Íslands til alþjóðlegs samstarfs um bættan aðgang að bóluefnum við COVID-19 (COVAX). Ísland hefur nú varið rúmum milljarði króna til að bæta aðgang þróunarríkja að bóluefnum gegn COVID-19. Forsætisráðherra tilkynnti um framlag Íslands á áheitaráðstefnu bólusetningarbandalagsins Gavi. 

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra: 

„Aðgangur jarðarbúa að bóluefnum er afar misjafn og afleiðingar heimsfaraldurs COVID-19 bitna ekki síst á konum og börnum. Ég lagði  áherslu á mikilvægi þess að jafnréttissjónarmið verði höfð að leiðarljósi í dreifingu bóluefna.” 

Íslensk stjórnvöld hafa talað fyrir mikilvægi alþjóðlegrar samvinnu um þróun og framleiðslu bóluefnis og jafns aðgangs ríkja óháð greiðslugetu þeirra. Neyðin er enn mikil og því brýnt að ríki heims vinni áfram að því að allir hafi tryggan aðgang að bóluefni gegn COVID-19, eins og forsætisráðherra lagði áherslu á í ávarpi sínu í dag. 

Fjöldi þjóðarleiðtoga ávarpaði áheitaráðstefnuna sem Suga Yoshihide, forsætisráðherra Japans, boðaði til. Markmið ráðstefnunnar var að safna um tveimur milljörðum Bandaríkjadala og tryggja þannig nægilega fjármuni til að bólusetja hátt í þriðjung íbúa í lágtekjuríkjum.

Að meðtöldu 500 milljóna króna framlaginu sem forsætisráðherra tilkynnti í dag, hefur Ísland því nú varið rúmum milljarði króna til að tryggja þróunarríkjum aðgang að bóluefnum gegn COVID-19

COVAX er bóluefnastoð alþjóðlegs samstarfs til þess að flýta þróun, framleiðslu og jöfnum aðgangi að skimunarbúnaði, meðferðum og bóluefni gegn COVID-19. Framlag Íslands rennur til COVAX-AMC sem snýr að kaupum og dreifingu COVID-19 bóluefnaskammta fyrir þróunarlönd. Bólusetningarbandalagið Gavi hefur umsjón með þessum þætti samstarfsins.

Fréttin birtist fyrst á vef stjórnarráðsins.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search