Search
Close this search box.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson leiðir lista VG í Suðvesturkjördæmi

Deildu 

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, leiðir lista Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs í Suðvesturkjördæmi, en listinn var samþykktur á fjölsóttum fundi í Hátíðasal Flensborgarskóla í dag. Una Hildardóttir, varaþingmaður og forseti LUF er í öðru sæti. Ólafur Þór Gunnarsson, læknir og alþingismaður er í þriðja sæti. Hann hlaut annað sætið í forvalinu en færist niður um eitt, í anda laga VG. Valgerður Bláklukka Fjölnisdóttir, þjóðfræðinemi er í fjórða sæti, í fimmta er Þóra Elfa Björnsson, setjari og framhaldsskólakennari í Kópavogi og aldursforseti listans.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, oddviti listans, sagðist þakklátur fyrir að vera treyst fyrir því að leiða lista hreyfingarinnar. Byggt yrði á góðum verkum ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur og sterkum málefnagrunni Vinstri Grænna sem berjast fyrir réttlátara og jafnara samfélagi, grænum gildum, með kvenfrelsi- og friðarstefnu að leiðarljósi. 

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og Ólafur Þór Gunnarsson, alþingsmaður ræddu stjórnmálin í aðdraganda kosninga.

1. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra

2. Una Hildardóttir, varaþingmaður og forseti LUF           

3. Ólafur Þór Gunnarsson, læknir og alþingismaður        

4. Valgerður Bláklukka Fjölnisdóttir, þjóðfræðinemi       

5. Þóra Elfa Björnsson, setjari og framhaldsskólakennari            

6. Július Andri Þórðarson, stuðningsfulltrúi/háskólanemi           

7. Bjarki Bjarnason, rithöfundur og forseti bæjarstjórnar í Mosfellsbæ

8. Elín Björk Jónasdóttir, veðurfræðingur            

9. Fjölnir Sæmundsson, araþingmaður og formaður Landsambands lögreglumanna

10. Anna Þorsteinsdóttir, þjóðgarðsvörður         

11. Sigurður Loftur Thorlacius, umhverfisverkfræðingur 

12. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, grunnskólakennari og fyrrv. bæjarstjóri í Hafnarfirði             

13. Árni Matthíasson, netstjóri mbl.is, rithöfundur og stjórnarm í Kvennaathvarfinu         

14. Birte Harksen, leikskólakennari, Íslensku Menntaverðlaunin 2021    

15. Gunnar Kvaran, sellóleikari  

16. Elva Dögg Ásu og Kristinsdóttir, lögfræðingur og myndlistarkona     

17. Sigurbjörn Hjaltason, bóndi 

18. Elsa Sigríður Þorvaldsdóttir, iðjuþjálfi            

19. Ingvar Arnarson, bæjarfulltrúi Garðabæ, B.Sc í íþróttafræði

20. Anna Ólafsdóttir Björnsson, fyrrv. þingmaður kvennalista, tölvunar – og sagnfræðingur 

21. Einar Ólafsson, íslenskufræðingur    

22. Ragnheiður Júlía Ragnarsdóttir, deildarstjóri leikskóla          

23. Gestur Svavarsson, upplýsingatækniráðgjafi        

24. Aldís Aðalbjarnardóttir, kennari       

25. Einar Bergmundur Þorgerðar og Bóasson, hugbúnaðarsérfræðingur

26. Þuríður Backman, fyrrverandi alþingismaður

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search