PO
EN

Að tala við tækin

Deildu 

Með aukinni tæknivæðingu heimsins verður daglegt líf okkar mannfólksins bæði einfaldara og flóknara á sama tíma. Daglegt amstur hefur einfaldast töluvert en á sama tíma stöndum við frammi fyrir flóknum úrlausnarefnum. Eitt af þeim er hvernig við munum standa vörð um íslenska tungu í stafrænum heimi. Tungumál eru jú eitt það mikilvægasta og persónulegasta sem við höfum. Það er hverri manneskju nauðsynlegt að geta tjáð sig og vera skilinn.

Svörin við því hvernig við stöndum vörð um tungumálið okkar í breyttum heimi eru mörg og misjöfn. Til dæmis var á dögunum umræða í þinginu um stafræna endurgerð íslensks prentmál eftir að Kolbeinn Óttarsson Proppé, þingmaður VG, hafði frumkvæði að þingmáli þess efnis. Þannig mætti auka aðgengi að menningararfi þjóðarinnar á stafrænu formi, en að koma íslenskum ritverkum á stafrænt form er þó bara eitt af því sem þarf að hafa í huga.

Í dag er til dæmis víðast hvar sjálfsagður hlutur að geta talað við tækin. Allt frá því að geta kveikt eða slökkt á kaffivélinni á morgnanna í að geta beðið um leiðbeiningar að tilteknum ferðamannastað á ferð um ókunnug lönd og jafnvel verslað á netinu. Svona framfarir eru spennandi og leiða af sér ýmsa möguleika til að létta okkur lífið og mér finnst nokkuð ólíklegt að slíkri tækni muni fara hnignandi næstu árin. Þvert á móti held ég að hún muni verða sífellt meira áberandi og öðlast meira notagildi í hversdagslegu lífi okkar meðfram því að tæknin verði þróaðri og fjölbreyttari.

Gjaldgeng í hinum stafræna heimi

Að mínu mati undirstrikar þessi þróun mikilvægi þess að gera íslenska tungu gjaldgenga í hinum stafræna heimi. Að við getum talað við tækin á okkar móðurmáli og þau skilið okkur.

Ég er nefnilega ansi hrædd um að ef við getum ekki notað íslenskuna í okkar daglega lífi í samskiptum okkar við tækin að þá séum við að takmarka notagildi íslenskunnar að því marki að það gæti haft gríðarleg áhrif á framtíðarhorfur hennar. Í mínum huga væri það nánast jafn mikil takmörkun og að geta ekki skrifað á íslensku í tölvunum okkar eða framkvæmt einfalda leit á veraldarvefnum á íslensku.

Því er mikilvægt að benda á verkefni eins og Samróm, sem er einmitt ætlað að styrkja stöðu íslenskunnar í hinum stafræna heimi með því að taka upp og safna hljóðupptökum á íslensku. Svo má líka nefna framtak eins og Stafrænt Ísland sem er meðal annars ætlað að byggja upp og efla stafræna innviði við opinbera þjónustu.

Íslenska er örmál í hinum stóra heimi en hún er jafnframt merkilegur menningararfur og því er nauðsynlegt að við hlúum að tungumálinu á öllum sviðum.

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir. Höfundur er þingmaður Vinstri grænna.

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search