Search
Close this search box.

Að þora, geta og vilja

Deildu 


Um þessar mundir eru 50 ár síðan Rauðsokkuhreyfingin var stofnuð en 19. október 1970 kom hópur kvenna saman í kjallara Norræna hússins og hreyfing varð til. Fyrr sama ár hafi hópurinn byrjað að koma saman á sama stað til að ræða stöðu kvenna á Íslandi og tóku þátt i 1. maí göngunni. Þær báru risastóra styttu af konu með slagorðinu „Manneskja – ekki markaðsvara.“ Þungunarrof, getnaðarvarnir, barnaheimili og mat á heimilsstörfum kvenna voru meðal baráttumála hreyfingarinnar.

Hálfri öld síðar eru þessi mál enn til umræðu, en sem betur fer höfum við séð miklar framfarir í kvenfrelsismálum. Hið persónulega er fyrir löngu orðið pólitískt og nú eru leikskólar, þungunarrof og fæðingarorlof mál sem rædd eru opinskátt á öllum stigum samfélagsins.

Vorið 2019 samþykkti Alþingi lög um þungunarrof sem tryggðu loks sjálfsákvörðunarrétt kvenna yfir eigin líkama en réttur kvenna yfir eigin líkama var eitt fyrsta baráttumál rauðsokkuhreyfingarinnar. Þær tóku þátt í að skrifa löggjöf um fóstureyðingar og getnaðarvarnir en þá var sjálfsákvörðunarréttur kvenna ekki viðurkenndur, samfélagið var ekki til í að samþykkja þá róttæku hugmynd að konur réðu sér sjálfar. Það hafðist loksins, 49 árum seinna.

Á spjalli við vinkonur mínar á dögunum rifjaðist upp fyrir mér menntaskólaverkefni sem við höfðum unnið saman fyrir um það bil tíu árum. Umfjöllunarefnið var hvernig kynlíf og þá sérstaklega nakinn kvenmannslíkami væri notaður í auglýsingum. Niðurstaðan var sú að kvenlíkaminn væri svo markaðsvæddur að samfélagið væri hætt að taka eftir því. Þetta var um það bil 40 árum eftir að rauðsokkurnar gengu með styttuna af konunni sem var manneskja en ekki markaðsvara á 1. maí.

Við höfum komist svo ofboðslega langt. Fimmtíu ár hljómar eins og langur tími en í stóra samhenginu er þetta ekki mjög langt. Við eigum það til að gleyma því að það er ekki heil mannsævi liðin frá stærstu sigrunum í baráttunni fyrir mannréttindum. Sumir samfélagshópar þurfa enn að berjast fyrir sjálfsögðum mannréttindum sínum. Á síðustu árum hafa sem betur fer stórir sigrar verið unnir hver á eftir öðrum. Það er mikilvægt að gleyma ekki hverjir ruddu brautina. Hverjir þorðu, gátu og vildu breyta samfélaginu til hins betra og börðust fyrir breytingum sem við njótum góðs af á hverju degi. Þegar loks sjást sprungur í glerþakinu er mikilvægt að þakka þeim sem létu fyrstu höggin dynja.

Höfundur er varaþingmaður Vinstri grænna.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search