Search
Close this search box.

Aðgerðaáætlun heilbrigðissstefnu til fimm ára

Deildu 

Fimm ára aðgerðaáætlun heilbrigðisráðherra um framkvæmd heilbrigðisstefnu hefur verið lögð fram á Alþingi. Aðgerðaáætlunin tekur til áranna 2021 – 2025. Fyrsta aðgerðaáætlunin var lögð fram í júní í fyrra, skömmu eftir að Alþingi samþykkti þingsályktun um heilbrigðisstefnu til ársins 2030, en samkvæmt henni skal uppfærð aðgerðaáætlun til fimm ára lögð fyrir þingið ár hvert.

Framkvæmd heilbrigðisstefnu veltur á ýmsum þáttum sem kalla á skipulögð vinnubrögð og sameiginlegt átak allra hagsmunaaðila. Þar vega m.a. þungt starfsáætlanir heilbrigðisstofnana, innleiðing áætlunar embættis landlæknis um gæðaþróun í heilbrigðisþjónustu og meðfylgjandi fimm ára aðgerðaáætlun heilbrigðisráðherra sem tengja skal við fjárlagavinnu Alþingis á hverjum tíma og taka mið af helstu áskorunum og áhersluverkefnum í heilbrigðismálum.

Aðgerðaáætlunin hefur verið gefin út á skýrsluformi en er jafnframt aðgengileg sem þingskjal á vef Alþingis.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search