PO
EN
Search
Close this search box.

Ákall um aðgerðir gegn þjóðarmorði í Gaza

Deildu 

Ástandið í Gaza er skelfilegt og kallar á tafarlaus viðbrögð. Mannréttindaskrifstofa Sameinuðu þjóðanna hefur lýst aðgerðum Ísraels á Gaza sem þjóðarmorði, þar sem fjöldi brota gegn alþjóðalögum og mannréttindum hefur verið staðfestur. Í skýrslu skrifstofunnar kemur fram að Ísrael hafi stundað hnitmiðaðar árásir á almennar byggingar og hjálparstarfsmenn, beitt hungursneyð sem vopni og framkvæmt hóprefsingar gegn palestínskri þjóð. Kerfisbundin eyðilegging innviða, svo sem vatns- og hreinlætisaðstöðu, mun hafa langvarandi áhrif á líf fólks á svæðinu.

Á sama tíma hefur Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn í Haag (ICC) gefið út handtökuskipanir á hendur Benjamíns Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, Yoav Gallant, fyrrverandi varnarmálaráðherra, og Mohammed Diab Ibrahim Al-Masri, ásamt öðrum leiðtogum Hamas. Þeir eru sakaðir um stríðsglæpi og glæpi gegn mannkyninu vegna aðgerða sem hafa haft hörmuleg áhrif á saklaust fólk í Gaza.

Handtökuskipanir ICC eru mikilvæg áminning um ábyrgð leiðtoga í átökum og gætu haft víðtækar afleiðingar. Ísland, sem aðildarríki ICC, ber lagalega skyldu til að framfylgja þessum handtökuskipunum ef þeir ferðast til landsins.

Vinstri græn, sem byggja stefnu sína meðal annars á friðarhyggju og mannréttindum, hafa látið rödd sína heyrast í þessu samhengi. Á nýafstöðnum landsfundi samþykkti flokkurinn ályktun þar sem aðgerðir Ísraels eru fordæmdar og kallað eftir refsiaðgerðum gegn ríkinu. Nú, þegar ástandið hefur versnað til muna, er ljóst að næsta skref er að sýna í verki skýra andstöðu við brot Ísraelsríkis á alþjóðalögum og mannréttindum með því að slíta stjórnmálasambandi við Ísrael. Við styðjum sömuleiðis málsókn Suður-Afríku gegn Ísrael og teljum hana mikilvægt skref í baráttunni fyrir réttlæti og ábyrgð á alþjóðavettvangi.

Þingmenn Vinstri grænna lögðu fram þingsályktunartillögu á nýliðnu þingi sem kallar eftir viðskiptaþvingunum á Ísrael til að þrýsta á ríkið um að virða alþjóðalög.

Þetta er ekki bara spurning um réttlæti heldur um skyldur. Ísland hefur siðferðislega og lagalega ábyrgð til að fordæma stríðsglæpi og þjóðarmorð og styðja refsiaðgerðir og málshöfðanir gegn brotum. Með því sendir Ísland skýr skilaboð um að mannréttindi og réttlæti séu ófrávíkjanlegar grunnstoðir samfélags okkar.

Í dag boðar Félagið Ísland-Palestína til ljósagöngu frá Hallgrímskirkju að Alþingi. Söfnumst saman fyrir framan Hallgrímskirkju kl. 16 og göngum niður Skólavörðustíg kl. 16:20 að Alþingi. Ég hvet öll til að koma og sýna samstöðu.

Í kvöld er svo opinn fundur um málefni Palestínu með fulltrúum stjórnmálaflokka sem bjóða fram til Alþingis í öllum kjördæmum. Yfirskrift fundarins er Ábyrgð Íslands í alþjóðasamfélaginu: Gaza og framtíðin. Þetta er mikilvægur vettvangur til að ræða ábyrgð Íslands og hvernig við getum stuðlað að friði og réttlæti.

Við skulum muna að aðgerðarleysi jafngildir samþykki. Það er skýlaus krafa að íslensk stjórnvöld grípi til aðgerða nú þegar.

Höfundur er þingmaður Vinstri grænna og frambjóðandi í 2. sæti á lista VG í Suðvesturkjördæmi

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search