PO
EN

Allt fyrir listina

Deildu 

Miður nóvember og tónlistarveislunni Iceland Airwaves er nýlokið í Reykjavík með tilheyrandi upplifunum og gjaldeyristekjum. Jólabókaflóðið nær ströndum mjúklega en kröftugt, fullt af hugsunum, sammannlegri reynslu og orðlist. Kórar og tónlistarskólar landsins sem og dansskólanemendur og sirkusbörn búa sig undir að sýna afrakstur annarinnar með ljúfri og nærandi samveru í desember. Leikhúsin bjóða upp á hlaðborð af tilfinningum fyrir alla aldurshópa, íslenskar bíómyndir og þættir gera það sama og svo mætti áfram og lengi, lengi telja.

Menning skapar mikil verðmæti

Íslensk menning, list og sköpun eiga alltaf að vera kosningamál. Fyrir utan að standa undir 3,5% af þjóðartekjum samkvæmt nýútkominni skýrslu (í samanburði stendur sjávarútvegurinn undir 4,7%) þá er mikilvægi skapandi greina í andlegu og félagslegu heilbrigði þjóðarinnar ómetanlegt og ómælt. List og menning byggja brýr milli okkar, fá okkur til að skoða hver við erum, spegla okkur í sammannlegri reynslu, koma saman og upplifa í raunveru og rauntíma, gera okkur grein fyrir því að við erum aldrei ein með okkar bestu eða erfiðustu reynslu, að við erum samfélag og farnast best ef við stöndum saman.

Eina sem aldrei nóg er af

Þess vegna er svo óendanlega mikilvægt að hlúa að listafólki og listum á öllum stigum. Við eigum að byrja á byrjuninni og styðja þétt við barnamenningu og allt listnám sem er undirstaða þess að búa til list og sækja listviðburði en er líka lýðheilsumál til framtíðar. Það er löngu kominn tími til að barnamenning fái sitt eigið hús. Og talandi um hús þá er bókstaflega verið að útrýma sviðum á höfuðborgarsvæðinu með því að nýta rými sem áður hýstu myndlist, leiklist eða tónlist undir veislusali eða pílu. Það er grundvallaratriði að skapa listafólki tíma og innra rými til sköpunar en það þarf líka útvega rými til að við fáum notið listarinnar, hlegið, grátið, gleymt okkur og munað eftir okkur líka.

Þá er það líka óþolandi að listamenn þurfi sífellt að biðjast afsökunar á því að vilja afla sér viðurværis með list sinni, listsköpun er ekki eina vinnan sem er skemmtileg og um hagræn áhrif hennar þarf ekki að deila. Fjárfesting ríkisins í list og menningu með föstum og mannsæmandi listamannalaunum skilar þrefaldri ávöxtun og því er furðulegt að rifist sé um það á hverju einasta ári hvort hún eigi rétt á sér. Úr fjárlögum ársins berst nú sú ómstríða að heildarskerðing fjármagns á milli áranna 2024 og 2025 á sviði menningarmála verði 365,4 milljónir króna í fjárlagafrumvarpi næsta árs. Í ljósi allra hagtalna, bæði beins ábata og óbeinna áhrifa á lýðheilsu og vellíðan hlýtur það að teljast sérkennileg ráðstöfun.

Og í lok nóvember kjósum við til alþingis. List, menning, sköpun er og hefur alltaf verið farartæki mennskunnar í átt að framtíðinni og Vinstri hreyfingin grænt framboð hefur alltaf verið í fararbroddi stjórnmálaflokka þegar kemur að því að efla þann mikilvæga og dýrmæta hluta samfélagsins sem skapandi greinar eru. Og mun halda því áfram.

Höfundur skipar þriðja sæti á lista VG í Reykjavík norður.

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search