PO
EN

Ályktanir samþykktar á flokksráðsfundi VG

Deildu 

Eftirfarandi ályktanir voru samþykktar á flokksráðsfundi Vinstri grænna í gær, laugardaginn 22. febrúar 2025.

Ályktun um stöðu mannréttinda í Bandaríkjunum

Flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs , haldinn í Reykjavík 22. febrúar 2025, lýsir yfir djúpum áhyggjum vegna þróunar mannréttindamála í Bandaríkjunum eftir að Donald Trump tók aftur við embætti forseta í janúar 2025. Frá því að hann hóf annað kjörtímabil sitt eru mannréttindi fjölda jaðarsettra hópa í í hættu. Einnig fordæmir fundurinn afskipti auðkýfingsins Elon Musk á innanlandspólitík annarra landa og stuðning hans við öfgahægriflokka í m.a. Þýskalandi og Bretlandi.

Vegna skipunar Trumps á dómara í Hæstarétt Bandaríkjanna á fyrra kjörtímabili var réttur kvenna til þungunarrofs verulega skertur eftir að Hæstiréttur felldi úr gildi dóminn í máli Roe gegn Wade árið 2022. Þetta leiddi til þess að mörg ríki settu strangar takmarkanir á aðgengi að þungunarrofi, sem hefur haft alvarleg áhrif á heilbrigði og sjálfsákvörðunarrétt kvenna. Einnig hafa réttindi hinsegin fólks verið skert, þá sérstaklega trans fólks, með forsetatilskipunum. Um er að ræða alvarlegt bakslag í mannréttindabaráttu hinsegin fólks. Þá hefur Trump hrint í framkvæmd innflytjendastefnu sem hefur og mun valda ómældri þjáningu stórs hluta fólks sem á það á hættu að vera vísað úr landi eftir að hafa búið í Bandaríkjunum til lengri tíma.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð fordæmir þessa þróun og hvetur bandarísk stjórnvöld til að virða og vernda mannréttindi allra einstaklinga, óháð kyni, kynhneigð, kynvitund eða uppruna. Við stöndum með þeim sem berjast fyrir jafnrétti og mannréttindum í Bandaríkjunum sem og um allan heim.

Ályktun um frið fyrir botni Miðjarðarhafs

Flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs , haldinn í Reykjavík 22. febrúar 2025, fordæmir og mótmælir með öllu þjóðarmorðinu á Gaza, framferði Ísraelshers á svæðinu og aðild Bandaríkjanna sem og annarra Vesturlanda að blóðbaðinu. Ísrael hefur frá upphafi stundað landrán á palestínsku landi og brotið gróflega á mannréttindum Palestínumanna. Það vopnahlé sem komist á í upphafi árs er viðkvæmt og staða almennings á Gaza skelfileg. Síðasta eitt og hálfa árið hefur einkennst af svívirðilegum hernaði og stríðsglæpum og íbúar heimsbyggðarinnar hafa þurft að fylgjast með morðum á almennum borgurum, að stórum hluta konum og börnum, fjölskyldum, sjálfboðaliðum og svo mætti lengi telja. Framferði Ísraels á hernumdu svæðunum á Vesturbakkanum, þar sem Palestínumenn búa við ofbeldi, ofríki og manngerða hungursneyð, er viðurstyggilegt. Um er að ræða landránsnýlendustefnu sem virðist nú eiga að kóróna með hugmyndum Bandaríkjaforseta um „rívíeru Miðausturlanda“ í eigu Bandaríkjanna. Slíkt tal er ekkert annað en ákall eftir þjóðernishreinsunum. Það er forkastanlegt að slíkar hugmyndir séu viðraðar á 21. öld en þær minna helst á skelfilegt framferði evrópskra stórvelda á hátindi nýlendutímans. Alþjóðasamfélagið þarf að taka höndum saman og hafna hugmyndum Bandaríkjaforseta, tryggja sjálfstæði Palestínu og varanlegan frið á svæðinu fyrir botni Miðjarðarhafs. Vinstrihreyfingin grænt framboð skorar á utanríkisráðherra Íslands að hafa hærra á alþjóðavettvangi og standa með Palestínu.

Ályktun um Hvammsvirkjun

Flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, haldinn í Reykjavík 22. febrúar 2025, hafnar frumvarpi umhverfisráðherra um að ráðast í lagasetningu sem keyrir framkvæmd Hvammsvirkjunar í gegn án nokkurra tafa, með allri þeirri eyðileggingu á náttúru svæðisins og landslagsheildum sem henni fylgi. Frumvarpið í heild vegur að náttúruvernd og lýðræðislegum rétti almennings til að lýsa skoðunum sínum á umhverfismálum. Málið er ótækt og veldur stórkostlegum skaða verði það samþykkt. Mikilvægt er að vanda vel til verka í allri lagasetningu í jafn viðkvæmum og umdeildum málaflokki.
Vinstrihreyfingin – grænt framboð mótmælir því að ráðherra minnist ekki einu orði á náttúruvernd í samhengi við Hvammsvirkjun, þrátt fyrir að í Þjórsá sé stærsta laxastofn landsins að finna, auk þess sem virkjunin mun hafa víðtæk áhrif á ásýnd sveitarinnar sem og vistkerfi árinnar og líffræðilegan fjölbreytileika. Náttúran á alltaf að fá að njóta vafans.

Ályktun um umhverfismál og raforkuvinnslu

Flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, haldinn í Reykjavík 22. febrúar 2025, ályktar að auðlindir skuli vera í þjóðareign. Forðast skal frekari uppbyggingu í orkuframleiðslu þar sem stóriðja notar 77% alls rafmagns á landinu. Hætta steðjar að ósnortinni og viðkvæmri náttúru Íslands vegna orkuframleiðslu fyrir orkufrekan iðnað. Stóriðja, sér í lagi framleiðsla málma, er í senn mjög mengandi fyrir loftslagið og  stór hluti af kolefnisspori Íslands. Langstærsti útlosunarflokkurinn sem veldur losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi er iðnaður og efnanotkun, sem hefur aukist um 122 prósent frá 1990 til 2021. Þá hefur losun frá staðbundnum iðnaði, þ.e. ál- og kísilverum, aukist um 116% frá árinu 2005 – og nemur 40% af losun Íslands, ef landnotkun og skógrækt eru ekki reiknuð með. Ekki er reiknað með að nokkur almennilegur samdráttur verði á losun tengdum þessum iðnaði í náinni framtíð.

Gagnaver nota jafn mikið rafmagn og heimilin í landinu. Tryggja þarf að almenningur hafi aðgang að raforku fram yfir orkufrekan iðnað á borð við málmframleiðslu og gagnaver.

Mikilvægt er að byggja upp regluverk og koma málaflokknum í umsjá opinberra aðila hið fyrsta til að koma í veg fyrir gullgrafaraæði í uppbyggingu vindorkuvera í skjóli slaks regluverks.

Einnig ítreka Vinstri græn nauðsyn þess að styrkja regluverk til að koma í veg fyrir stórfelld uppkaup eða leigu innlendra og erlendra auðmanna eða annarra aðila á jörðum.

Ályktun um skaðaminnkun og sölu bjargráðalyfja

Flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, haldinn í Reykjavík 22. febrúar 2025 lýsir áhyggjum af faraldri ópíóðanotkunar ungmenna. Vinstri græn styðja skaðaminnkandi úrræði þar sem einstaklingar eru studdir í niðurtröppun og yfirferð á lyfjameðferð með ópíóíðum. Fundurinn styður sölu bjargráðalyfsins naloxone í lausasölu í apótekum sem er hægt að grípa í heima þegar í stað við skaðlegum aukaverkunum lyfjanna og þegar öndunarbæling á sér stað.

Ályktun um húsnæðismál

Flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, haldinn í Reykjavík 22. febrúar 2025, kallar eftir afgerandi aðgerðum frá nýrri ríkisstjórn í húsnæðismálum. Setja þarf leiguþak sem verndar leigjendur fyrir óhóflegum og ófyrirséðum hækkunum. Auka þarf uppbyggingu óhagnaðardrifinna húsnæðisfélaga á vegum sveitarstjórna og verkalýðshreyfingarinnar til að auðvelda lágtekjuhópum  að leigja húsnæði.  Óboðlegt er að fólk þurfi að hafa miklar fjárhagsáhyggjur vegna húsnæðiskostnaðar. Sporna þarf við því að húsnæði sé nýtt sem fjárfestingarkostur og skoða þarf róttækar lausnir í þeim efnum.

Einnig að auðvelda lágtekjuhópum  að leigja og eignast húsnæði. Setja þarf  á laggirnar nýtt félagslegt eignaríbúðakerfi til að fjölga valkostum á húsnæðismarkaði og auðvelda láglaunafólki að eignast eigið húsnæði. Öruggt húsnæði er hluti af grundvallar mannréttindum.

Ályktun um umhverfis- og náttúruverndarmál

Flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, haldinn í Reykjavík 22. febrúar 2025, lýsir yfir vonbrigðum með stefnu nýrrar ríkisstjórnar í umhverfis- og náttúruverndarmálum sem og þeirri orkustefnu sem nú blasir við.

Íslensk náttúra og samfélag á annað og betra skilið en gengdarlausar árásir í þágu sérhagsmuna sem kunna sér ekki hóf gagnvart takmörkuðum auðlindum þjóðarinnar.

Ályktun um aðild Íslands að NATO og varnarsamnings við Bandaríkin

Flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, haldinn í Reykjavík 22. febrúar 2025, telur einsýnt að endurskoða þurfi aðild Íslands að NATO og þá sérstaklega varnarsamninginn við Bandaríkin. Þegar forseti Bandaríkjanna hótar Grænlandi, næsta nágranna og vinaþjóð Íslands, vopnuðu ofbeldi er ljóst að Íslendingar þurfa að endurmeta hvernig öryggishagsmunum þjóðarinnar er best borgið. Ýmsar aðrar yfirlýsingar núverandi forseta Bandaríkin kalla á endurmat á afstöðu og samskiptum við stórveldið í vestri.

Ályktun um fjárhagslegar og samfélagslegar áskoranir sveitarfélaga

Flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, haldinn í Reykjavík 22. febrúar 2025, bendir á að sveitarfélög landsins standa frammi fyrir sívaxandi fjárhagslegum og samfélagslegum áskorunum þar sem verkefni þeirra hafa aukist án fullnægjandi fjárveitinga frá ríkinu. Sveitarfélög eru grunnstoðir samfélagsins og gegna lykilhlutverki í að tryggja jöfnuð, félagslegt réttlæti og náttúruvernd með síauknu umfangi og regluverki. Til að efla nærþjónustu, draga úr loftslagsáhrifum og styrkja lýðræðislega þátttöku íbúa þarf markvissar aðgerðir og aukið fjármagn til sveitarfélaga.

Flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs  skorar á ríkisstjórn Íslands og Alþingi að tryggja sveitarfélögum þær bjargir sem nauðsynleg eru til að mæta sívaxandi áskorunum. Til að stuðla að sjálfbærri þróun sveitarfélaga krefjumst við eftirfarandi aðgerða:

– Sveitarfélög fái fulla endurgreiðslu á virðisaukaskatti frá ríkinu vegna innviðauppbyggingar á lögboðnum verkefnum.

– Aukin fjárframlög frá ríkinu verði tryggð til að mæta lögbundinni þjónustu og tekjuöflunarmódel sveitarfélaga verði endurskoðað.

– Gistináttagjald renni til þess sveitarfélags hvar gistináttaeining er seld.

– Lýðræðisleg þátttaka verði efld með auknu samráði og aðkomu íbúa að ákvörðunum um nærþjónustu.

– Leikskólastigið verði skilgreint og lögfest sem hluti af menntakerfinu á ábyrgð sveitarfélaganna með skýrri fjármögnun og jöfnum tækifærum fyrir öll börn.

– Að bætt kjör og starfsaðstæður kennara og starfsfólks í leik- og grunnskólum verði tryggð og að staðið verði við samkomulag um jöfnun launa á markaði frá 2016.

– Öflug heilbrigðisþjónusta verði tryggð í dreifbýli, meðal annars með sterkari fjármögnun heilsugæslu og betra aðgengi að sérfræðiþjónustu.

– Tryggja þarf örugga sjúkraflutninga til Reykjavíkur en um 650 sjúklingar eru fluttir þangað árlega af landsbyggðinni með sjúkraflugi til að sækja bráðaþjónustu á Landspítala.

– Að sveitarfélög verði leiðandi í að tryggja hækkun lágmarkslauna, jafna launamun kynjanna og skapa fyrirmyndarvinnustaði í opinberri þjónustu, m.a. með því að bjóða fólk með skerta starfsgetu til starfa og skapa því starfsumhverfi við hæfi.

– Almenningssamgöngur verði efldar á landsvísu með skýrri lagalegri umgjörð og stöðugri fjármögnun, bæði fyrir stór verkefni á borð við Borgarlínu og fyrir nauðsynlega uppbyggingu samgangna í dreifbýli. Kolefnishlutlausir samgöngumátar þurfa að verða raunhæfur valkostur um allt land. Hafinn verði undirbúningur að öflugu almenningssamgangakerfis í anda Borgarlínu, svo sem lestakerfis, á landsvísu.

– Gæta að fyrirsjáanleika í breytingum á sköttum og gjöldum, ekki síst hvað varðar ferðaþjónustugreinar.

– Unnið verði að úrbótum á innviðaskuld í samgöngum um allt land með því að auka fjárframlög til málaflokksins í hlutfalli við verga landsframleiðslu. Þannig verði unnt að ráðast í jarðgangagerð og tryggja öruggar og áreiðanlegar samgöngur fyrir alla landsmenn.

– Sett verði skýr markmið um kolefnishlutleysi sveitarfélaga með bindandi aðgerðaáætlunum og auknum stuðningi við notkun endurnýjanlegrar orku.

– Byggingar sveitarfélaga verði hannaðar og endurnýjaðar með sjálfbærni og orkunýtingu að leiðarljósi.

– Viðkvæm náttúrusvæði verði varin með skýrri stefnu um sjálfbæra landnýtingu.

– Auðlindir sveitarfélaga, þar á meðal orkuauðlindir og vatn, skulu vera í almannaeigu og sveitarfélög njóta réttmæts arðs af þeim. Ekki má selja þær erlendum aðilum eða einkavæða í þágu skammtímahagnaðar.

Flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs hvetur stjórnvöld til að tryggja sveitarfélögum nauðsynleg úrræði, fjármagn og lagaheimildir til að vinna í þágu íbúa, loftslags og náttúru. Aðeins með öflugum og sjálfbærum sveitarfélögum getum við byggt upp samfélag byggt á jöfnuði, lýðræði og umhverfisvernd.

Almenn stjórnmálaályktun flokksráðsfundar Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs

Vinstrihreyfingin – grænt framboð stendur á tímamótum. Við höfum gegnt lykilhlutverki í íslenskum stjórnmálum um langt árabil, en nú stöndum við utan ríkisstjórnar og utan þings. Það breytir ekki meginviðfangsefnum samfélagsins og áherslum okkar sem stjórnmálahreyfingar. Barátta fyrir félagslegu réttlæti, jöfnuði og umhverfisvernd er brýnni en nokkru sinni fyrr. Blikur eru á lofti í alþjóðamálum, samfélagslegur ójöfnuður eykst, vegið er að mannréttindum og loftslagsvá kallar á tafarlausar aðgerðir. 

Vinstri græn leggja áherslu á að hagstjórn taki mið af lífi fólks en ekki eingöngu hagvaxtartölum. Við leggjum áherslu á jöfnuð og samfélagslega nálgun í stjórn efnahagsmála og ríkisfjármálum. Brýnt er að afla aukinna tekna til að standa straum af kostnaði við almannaþjónustuna og til að jafna kjör í samfélaginu. Fundurinn lýsir áhyggjur af framkomnum áformum ríkisstjórnarinnar um aðhald og niðurskurð í ríkisrekstri. Slík niðurskurðarstefna er til þess fallin að vernda hagsmuni fjármagnseigenda á kostnað almennings.

Það er óviðunandi staða að stór hluti almennings eigi erfitt með að komast inn á húsnæðismarkaðinn. Við krefjumst raunhæfra og félagslegra lausna í ríkari mæli, þar með talið aukins framboðs á hagkvæmu leiguhúsnæði. 

Við styðjum hækkun bóta almannatrygginga og bættan hag lífeyrisþega. Hagnaður stórfyrirtækja má ekki byggjast á láglaunastefnu og ófullnægjandi starfsöryggi. 

Það er stórkostlega mikilvægt að samið verði við kennara sem er lykilstétt í því að tryggja samheldni og jöfnuð í samfélaginu. Stéttin býr við vaxandi álag og áskoranir í ljósi aukinnar fjölbreytni í nemendahópnum á öllum skólastigum.

Vinstri græn vara við áherslu á óhefta orkuöflun sem verður alltaf á kostnað náttúruverndar. Slíkt má aldrei líðast. Vinstri græn leggjast alfarið gegn aðför ríkisstjórnarinnar að náttúruvernd.

Vinstri græn fordæma stríðsglæpi ísraelskra stjórnvalda og krefjast varanlegs vopnahlés á Gasa. Jafnframt fordæmum við innrásarstríð Rússa í Úkraínu. 

Staða mála í Bandaríkjunum og þær breytingar sem nýr forseti þar í landi hefur nú þegar sett af stað eru óhugnanlegar. Mannréttindum, samstöðu á alþjóðavettvangi og sannleikanum er ýtt til hliðar á grundvelli sjálfhverfu forsetans. VG kallar eftir raunverulegum aðgerðum gegn ofbeldi, kúgun og ofríki um allan heim. Ísland á að tala skýrt í alþjóðasamfélaginu fyrir friði og mannréttindum.

VG er hreyfing sem stendur vörð um jöfnuð, umhverfisvernd og félagslegt réttlæti. Á tímum óvissu og breytinga er skýr pólitísk sýn mikilvægari en nokkru sinni fyrr. Vinstri græn munu halda áfram baráttunni fyrir betra samfélagi – bæði hér heima og á alþjóðavettvangi. Hreyfingin vill stíga skref í átt að sterkari, skýrari og baráttuglaðari Vinstri grænum. Við viljum taka þátt í þeirri deiglu sem snýst um að tryggja farveg fyrir vinstrið og græn sjónarmið í íslenskum stjórnmálum bæði í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga og til lengri framtíðar. 

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search