Ályktun gegn hatursorðræðu
Flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, haldinn í Reykjavík 8. nóvember 2026, fordæmir hatursorðræðu og hvers kyns niðurlægingu, mismunun eða ógnir sem beinast gegn fólki meðal annars vegna uppruna, hörundslitar, kyns, kynhneigðar, kynvitundar, kyntjáningar, fötlunar eða trúar. Allt fólk á jafnan rétt á virðingu, öryggi og þátttöku í samfélaginu. Aðgerðir gegn hatursorðræðu verði unnar í samráði við þá hópa sem hún beinist gegn og tryggi þolendum aðgengilegan stuðning.
Fundurinn hvetur stjórnvöld, fjölmiðla, samtök og almenning til að standa gegn fordómum og hatri og sýna þeim sem verða fyrir slíku ótvíræðan stuðning. Sérstök ábyrgð hvílir á kjörnum fulltrúum og öðrum áhrifafólki að ala ekki á tortryggni og fjandskap í garð einstakra hópa.
Fundurinn krefst þess að stjórnvöld fari í sértækar aðgerðir til að uppræta hatursorðræðu og að lagaákvæði þar að lútandi í almennum hegningarlögum sé fylgt eftir af festu.
Ályktun til stuðnings palestínsku þjóðinni
Flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, haldinn í Reykjavík 8. nóvember 2026, ítrekar afdráttarlausan stuðning sinn við palestínsku þjóðina og fordæmir þjóðarmorðið á Gaza og stríðsglæpi sem felast í áframhaldandi hernaðaraðgerðum Ísraels og ofbeldi landránsmanna á Vesturbakkanum. Ísraelsher heldur hlífiskildi yfir þeim þrátt fyrir að á milli 120 og 200
Palestínumenn hafi verið drepnir þar af ólöglegu ísraelsku landtökufólki frá því í október 2025.
Þó að yfirlýst vopnahlé standi yfir heldur ofbeldi áfram gegn íbúum Gaza. Samkvæmt skýrslu UNICEF hafa um 300 börn verið drepin á Gaza frá því vopnahléið tók gildi í október í fyrra. Heildarfjöldi barna sem hafa fallið eða særst í hernaðinum á Gaza frá upphafi deilunnar í október 2023 er því kominn yfir 64.000. Þessi síendurteknu brot á vopnahléi milli Ísraels og Palestínu eru ólíðandi sem og síendurtekið ofbeldi í garð Palestínumanna á Vesturbakkanum.
Flokksráðsfundur Vinstri grænna krefst þess að íslensk stjórnvöld fylgi fordæmingum á alþjóðavettvangi eftir með raunverulegum aðgerðum. Hörð orð og fordæmingar duga ekki til að stöðva ísraelsk stjórnvöld sem ætla sér að halda áfram útrýmingu á palestínsku þjóðinni. Ísraelsk stjórnvöld vanvirða alþjóðalög og sáttmála og skeyta engu þótt tugþúsundir barna og almennra borgara hafi verið drepin með köldu blóði. Þessi staðreynd hefur loks verið að renna upp fyrir sífellt fleiri þjóðarleiðtogum.
Vinstri græn krefjast þess að íslensk stjórnvöld sýni andstöðu sína við stríðsglæpi Ísraels í verki, ekki aðeins í orði. Fundurinn krefst þess að Ísland banni innflutning á vörum frá hernumdu svæðunum og Ísrael og beiti sér fyrir markvissum efnahagsþvingunum með öðrum ríkjum gagnvart Ísrael. Ísland nýti stöðu sína í Mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna og alþjóðlegu samstarfi í hvívetna til að verja réttindi palestínsku þjóðarinnar og til að sýna raunverulega andúð á stríðsglæpum í verki. Ísland verður að standa, nú sem áður, með alþjóðalögum, alþjóðastofnunum, mannréttindum og rétti palestínsku þjóðarinnar til frelsis, friðar, sjálfsákvörðunar og eigin ríkis.
Fundurinn krefst þess jafnframt að tryggður verði óhindraður aðgangur mannúðaraðstoðar að Gaza og vernd almennra borgara, fjölmiðlafólks og hjálparstarfsfólks. Ísland auki stuðning sinn við neyðaraðstoð við palestínsku þjóðina.
(mynd: Golli )