Search
Close this search box.

Aukið aðgengi fatlaðs fólks

Deildu 

Í dag höldum við hátíðlegan alþjóðlegan dag fatlaðs fólks sem ætlað er að stuðla að aukinni þekkingu og skilningi á málefnum fatlaðs fólks. Í ár er sérstök áhersla á hlutverk nýsköpunar við að ýta undir aðgengilegan og sanngjarnan heim.

Í starfi mínu sem ráðherra hef ég lagt þunga áherslu á þau sjálfsögðu réttindi að fatlað fólk eigi að geta notið mannréttinda og mannfrelsis til fulls og til jafns við aðra.

Aðgengi er forsenda þátttöku. Þegar við erum að tala um aðgengi er ekki nóg að hugsa um byggingar. Hindranir samfélagsins valda fötluðu fólki erfiðleikum. Verkefnið er því að tryggja aðgengi til jafns við aðra að efnislegu umhverfi, samgöngum, upplýsingum, samskiptum og allri annarri þjónustu eða aðstöðu sem almenningi stendur til boða hvort sem er í þéttbýli eða dreifbýli.

Ríkisstjórnin hefur sett umfangsmikla vinnu í gang til að auka og tryggja réttindi fatlaðs fólks. Mig langar að nefna nokkur mikilvæg atriði í því sambandi:

  • Í fyrsta lagi vinnur forsætisráðherra að lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og að stofnun Mannréttindastofnunar.
  • Í öðru lagi vinnum við í félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu að gerð landsáætlunar um innleiðingu og framkvæmd samningsins hér á landi.
  • Í þriðja lagi hef ég lagt ríka áherslu á að tryggja stafrænt aðgengi fatlaðs fólks og höfum við þegar stigið fyrsta skrefið í því verkefni með opnun svokallaðs stafræns talsmannagrunns þar sem persónulegir talsmenn fatlaðs fólks geta nú fengið aðgang að stafrænu pósthólfi skjólstæðinga sinna og sinnt margvíslegum rafrænum erindum. Áframhaldandi þróun þessa er í gangi þannig að talsmannagrunnurinn nái til víðtækari þjónustu.
  • Í fjórða lagi mun ég á næstu dögum skipa starfshóp í samvinnu við háskóla- iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og mennta- og barnamálaráðherra, sem á að vinna tillögur um aukin náms- og starfstækifæri fyrir fatlað fólk.
  • Í fimmta lagi vil ég svo nefna endurskoðun á örorkulífeyriskerfinu sem mun stuðla að aukinni virkni og tækifærum á vinnumarkaði, auk þess að bæta kjör þeirra sérstaklega sem lakast standa á meðal örorkulífeyrisþega. Nýtt og betra kerfi mun gagnast fötluðu fólki.

Auk þessara verkefna styður ráðuneytið við fjölmörg umbótaverkefni félagasamtaka og annarra sem ætlað er að bæta lífsgæði fatlaðs fólks og aðgengi þess að samfélaginu. Hér mætti nefna stuðning við Miðstöð um auðlesið efni, og verkefnið Sæti við borðið, hvoru tveggja mikilvæg verkefni til að auðvelda aðgengi að samfélaginu.

Til hamingju öll með alþjóðlegan dag fatlaðs fólks.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search