Search
Close this search box.

Aukin velsæld á traustum grunni

Deildu 

Ríkisstjórnin kynnti yfirlýsingu sína til stuðnings lífskjarasamningum aðila vinnumarkaðarins nú í vikunni. Aðgerðirnar sem stjórnvöld munu ráðast í byggjast í fyrsta lagi á miklu samráði á milli stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins undanfarna mánuði og í öðru lagi á umfangsmikilli greiningarvinnu sem þetta samráð hefur leitt af sér.

Hluti af greiningarvinnunni hefur fjallað um þróun lífskjara ólíkra hópa undanfarin ár. Þar hefur komið í ljós að til að mynda hafa tekjulægri barnafjölskyldur og einstæðir foreldrar ekki notið kaupmáttaraukningar til jafns við aðra hópa. Þess vegna leggur ríkisstjórnin sérstaka áherslu á bætt kjör barnafjölskyldna. Það gerum við með skattkerfisbreytingum og nýju lágtekjuþrepi sem lækkar skattbyrði hinna tekjulægri og hækkun barnabóta. Hvort tveggja er mikið réttlætismál og lífskjarabót.

Fjölskylda með tvö börn mun þannig hafa allt að 411 þúsund krónum meira úr að spila á ári vegna samanlagðra breytinga sem ríkisstjórnin gerir, þ.e. lækkun á tekjuskatti og hækkun barnabóta. Hvort heldur sem við köllum þetta þrettánda­ mánuðinn eða eitthvað annað er ljóst að þessi upphæð mun skipta máli í daglegu lífi fólks.

Við lengjum líka fæðingarorlofið upp í 12 mánuði sem er gríðarlega mikilvægt skref. Áður höfðum við hækkað hámarksgreiðslur í fæðingarorlofi úr 500 í 600 þúsund sem gerir fleirum fært að fullnýta sér rétt sinn í orlofinu. Lengingin er stórt skref í að brúa bilið á milli fæðingarorlofs og leikskóla en það er ekki síður mikilvægt að tryggja foreldrum og börnum meiri tíma saman.

Fleiri aðgerðir ríkistjórnarinnar munu skipta þennan hóp máli og almenning allan, t.d. uppbygging félagslegs húsnæðiskerfis en samkvæmt greiningum getur húsnæðiskostnaður verið verulega íþyngjandi, ekki síst fyrir tekjulægri hópa. Réttarstaða leigjenda verður bætt og auknum framlögum varið í uppbyggingu almennra íbúða. Markviss skref eru stigin til að draga úr vægi verðtryggingar en um leið eru tryggðar mótvægisaðgerðir þannig að óverðtryggð lán verði valkostur fyrir lægri tekjuhópa með heimild til að nota lífeyrisiðgjald til að lækka afborganir. Þá eru í dag kynntar aðgerðir til að styðja við fyrstu kaup á fasteignamarkaði.

Ég tel að aðgerðir stjórnvalda og þeir samningar sem nú hafa náðst á vinnumarkaði geti verið grundvöllur víðtækrar sáttar og skapað forsendur fyrir bæði félagslegan og efnahagslegan stöðugleika til langs tíma. Af hálfu stjórnvalda er um að ræða mikilvægar samfélagslegar umbætur, hvort sem um er að ræða réttlátara skattkerfi, uppbyggingu á félagslegu húsnæðiskerfi eða lengingu fæðingarorlofs; allt mun þetta styðja við aukna velsæld alls almennings og aukinn jöfnuð.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search