Search
Close this search box.

Auknar fé­lags­legar að­gerðir í kjöl­far Co­vid-19

Deildu 

Covid-19 faraldurinn hafði mikil áhrif á líf okkar allra. Úttektir sem gerðar hafa verið sýna fram á að faraldurinn, sóttvarnaraðgerðir og sá efnahagslegi samdráttur sem fylgdi í kjölfarið hafi bitnað verst á fólki sem þegar glímdi við erfiðleika eða tilheyrir viðkvæmum hópum. Viðhorfskannanir benda einnig til mjög mismunandi reynslu fólks af faraldrinum eftir aldri, kyni, kynþætti, þjóðerni, starfsstétt og tekjum. Ríkisstjórnin ákvað nú fyrir páska að verja allt að 750 milljónum króna á þessu ári til sértækra aðgerða til að mæta félags- og heilsufarslegum afleiðingum Covid-19 og var sérstaklega horft til viðkvæmra hópa með ákvörðuninni. Stór hluti þessa fjármagns fer til verkefna í félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu eða tæpar 300 milljónir króna.

Spornað gegn einmanaleika eldra fólks

Félagsleg einangrun eldra fólks jókst í heimsfaraldrinum og það hreyfði sig minna. Eitt af stóru verkefnunum í nútímasamfélagi er að sporna gegn einangrun og einmanaleika, ekki síst meðal eldra fólks. Við ætlum að verja sextíu milljónum króna í að efla félagsstarf í sveitarfélögum, heilsueflingu og fræðslu, meðal annars um gildi hreyfingar og þátttöku í félagsstarfi eldra fólks.

Aukinn stuðningur við viðkvæma hópa

Það er afar mikilvægt að huga sérstaklega að stöðu viðkvæmra hópa í kjölfar faraldursins, en rannsóknir sýna að áhrif á þá vara lengur og koma fram síðar og við vitum að það var meðal annars reynslan eftir bankahrunið. Við munum því verja 80 milljónum króna á þessu ári til að styðja við félagasamtök sem þjónusta viðkvæma hópa, meðal annars til að takast á við einangrun og andlegt álag, veita mataraðstoð, félagslegan stuðning og stuðning við heimilislaust fólk.

Úrræði fyrir þolendur og gerendur ofbeldis

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið mun verja 45 milljónum króna til að auka aðgang að úrræðum fyrir þolendur og gerendur kynferðisofbeldis og heimilisofbeldis, en heimilisofbeldismál hafa aldrei verið fleiri en síðastliðin tvö ár. Við munum því veita auknu fjármagni til verkefna hjá félagasamtökum sem veita stuðning og ráðgjöf til þolenda ofbeldis og einnig til sálfræðimeðferða fyrir gerendur.

Félagsstarf fatlaðs fólks styrkt

Fatlað fólk hefur þurft að þola mikla einangrun vegna Covid-19 faraldursins og mikilvægt er að draga úr einmanaleika þess og auka aftur félagsleg tengsl. Til dæmis sýnir ein rannsókn að um helmingur svarenda sögðu að heimsfaraldurinn hefði raskað daglegu lífi þeirra frekar mikið eða mjög mikið. 95 milljónum króna verður varið í að efla félagsstarf fatlaðs fólks, meðal annars ævintýrabúðir fyrir fötluð börn og fjölskyldur þeirra og auknu félagsstarfi fullorðins fatlaðs fólks sem miðar að því að rjúfa félagslega einangrun í kjölfar Covid-19.

Milljarður árlega næstu þrjú ár

Það er mikilvægt verkefni stjórnvalda að grípa til aðgerða vegna félagslegra og heilsufarslegra áhrifa faraldursins til lengri tíma. Þess vegna hyggst ríkisstjórnin verja einum milljarði króna árlega næstu þrjú árin til verkefna sem hafa það að markmiði að vinna gegn félagslegum- og heilsufarslegum langtímaáhrifum faraldursins. Útfærsla þeirra verkefna er í vinnslu.

Við höfum frá upphafi faraldursins lagt mikla áherslu á að styðja við viðkvæma hópa og höldum áfram að setja það verkefni á oddinn.

Guðmundir Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search