PO
EN

Bar­áttan heldur á­fram

Deildu 

1. maí – alþjóðlegur baráttudagur verkalýðsins – skipar sérstakan sess í hugum okkar margra. Þessi dagur er tileinkaður réttlátum kjörum launafólks, réttindum þess, aðbúnaði og svo má lengi telja. Baráttan er hvergi nærri búin, þó náðst hafi góður árangur á mörgum sviðum undanfarin ár.

Afar mikilvægir kjarasamningar náðust á almennum vinnumarkaði í vor með styrkri aðkomu ríkisstjórnarinnar. Kjarasamningar til fjögurra ára eru líklegir til að stuðla að efnahagslegum stöðugleika og stuðningsaðgerðir stjórnvalda ýta undir félagslegan stöðugleika og betri lífskjör, ekki síst láglaunahópa og fjölskyldufólks. Verðbólga er þegar tekin að lækka og vextir fylgja vonandi brátt í kjölfarið.

Stuðningsaðgerðirnar fela sem dæmi í sér að skólamáltíðir verða frá og með næsta hausti endurgjaldslausar. Það mun gagnast þúsundum foreldra í auknu ráðstöfunarfé í lok hvers mánaðar. En málið er ekki síður komið til af prinsippástæðum. Gjaldfrjálsar skólamáltíðir eru taldar ein árangursríkasta leiðin til að draga úr fátækt barna og skólakerfið er eitt helsta jöfnunartæki samfélags okkar og hér beitum við því með virkum hætti.

Húsnæðismál eru eitt brýnasta kjaramál almennings. Meðal stuðningsaðgerða kjarasamninga verður áframhaldandi öflug uppbygging í almenna íbúðakerfinu og húsnæðisbótakerfið eflt. Húsnæðisbætur til leigjenda munu hækka um 25% og aukið tillit tekið til fjölskyldustærðar þannig að greiddar verða húsnæðisbætur fyrir allt að sex heimilismenn í stað fjögurra áður. Betur má þó ef duga skal og á næstu árum verður að efla leigumarkaðinn til muna og fjölga þarf íbúðum sem leigðar eru út á óhagnaðardrifnum forsendum.

Fleiri atriði úr kjarasamningum væri hægt að tína til. Bætt er enn í stuðning við barnafjölskyldur með hækkun fæðingarorlofs og barnabóta, en dregið verður úr tekjuskerðingum sem mun fjölga þeim foreldrum sem fá barnabætur um 10.000. Þá vil ég að lokum minna á að fyrir Alþingi liggur nú frumvarp um heildarendurskoðun örorkulífeyriskerfisins en þar er um að ræða stóra aðgerð til að draga úr fátækt meðal örorkulífeyrisþega.

Ég er þakklátur verkalýðshreyfingunni fyrir að hafa á undanförnum áratugum náð fram ótal mörgum réttindamálum fyrir fólkið í landinu, margt sem við teljum sjálfsagðan hlut í dag. Það eru þó enn ótalmörg baráttumál framundan. Hér vil ég nefna þrennt: að halda áfram að bæta hag láglaunafólks, að útrýma launamun kynjanna og að uppræta vinnumansal í íslensku samfélagi.

Ég vona að sem flest sjái sér fært að mæta í kröfugöngu. Til hamingju með verkalýðsdaginn.

Höfundur er formaður VG og félags- og vinnumarkaðsráðherra

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search