Search
Close this search box.

Beygja, brekka, blind­hæð, brú…

Deildu 

Á hverju hausti þegar skólarnir hefjast klóra ýmsir sér í kollinum yfir því hvaðan allt þetta fólk komi sem skyndilega virðist fylla götur bæjanna. Umferðin þyngist en innan fárra vikna finnur hún sér farveg og ökumenn breyta ferðaháttum sínum til að reyna að sneiða hjá mestu teppunum. Spá um íbúaþróun á höfuðborgarsvæðinu sýnir að næstu áratugi á fólki eftir að fjölga mjög með tilheyrandi álagi á gatnakerfið.

Umferðin tekur þó breytingum ár frá ári. Hjól, jafnt rafknúin sem fótstigin, verða sífellt algengari allan ársins hring og rafmagnshlaupahjól eru nú við hvert fótmál. Þetta eru jákvæðar breytingar á samgöngumenningu okkar, fyrir lýðheilsu, loftslag og umhverfi, auk þess sem þeim fylgir mikill þjóðhagslegur sparnaður. Upp eru að vaxa nýjar kynslóðir sem líta ekki á bifreið sem jafn sjálfsagðan hlut sinnar daglegu tilveru og okkur er tamt sem eldri erum. Íslenska leiðin var sú að taka bílpróf sem allra næst sautján ára afmælisdeginum og þótti hálfskringilegt ef fullorðið fólk sinnti ekki um að næla sér í ökuréttindi. Þeir tímar eru óðum að breytast. Borgarlína, sem Vinstrihreyfingin grænt framboð hefur lengi lagt áherslu á, jafnt í landsmálum sem á sveitarstjórnarstigi, mun með þéttu og öflugu leiðakerfi á höfuðborgarsvæðinu ýta enn frekar undir og styðja við breytta umferðarmenningu.

Þessi ánægjulega þróun felur þó í sér nýjar og mögulega óvæntar áskoranir. Umferðarmenningin er orðin flóknari en svo að nauðsynleg kunnátta snúist um að kunna að fara um gangandi eða keyrandi. Öllum sem ferðast um í samfélaginu er mikilvægt að kunna góð skil á umferðarreglum og lögum. Samfélagið hefur til þessa treyst því að flest ungmenni læri í gegnum ökunám sitt að fara um á farartæki. Breytt samgöngumenning og nýtt gildismat unga fólksins kallar líklega á að við hugsum það upp á nýtt. Ein leið væri að færa hluta umferðarkennslunnar inn í skólakerfið í enn meiri mæli en nú þegar er gert. Slík fræðsla yrði jafnframt að vera á forsendum fleiri samgöngutækja en einkabílsins til að laga okkur að breyttum veruleika. Tökum fjölbreyttum ferðamátum fagnandi en styðjum um leið við fræðslu og þekkingu fólks til að ferðast öruggt.

Steinunn Þóra Árnadóttir þingmaður, skipar annað sæti á lista Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Reykjavíkurkjördæmi norður.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search