Search
Close this search box.

Biðlistar eftir húsnæði styttast á vakt VG

Elín Oddný

Deildu 

Húsnæðismál og skortur á húsnæði hefur verið mikið vandamál allt frá hruni. Samkvæmt húsnæðisstefnu borgarinnar skal tryggja nægjanlegt framboð af stöðugu leiguhúsnæði á viðráðanlegu verði. Í stöðuskýrslu um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun frá árinu 2018 er bent á mikilvægi þess að auka framboð leiguhúsnæðis á eðlilegum kjörum á Íslandi. Félagslegar leiguíbúðir sveitarfélaga ber að tryggja einstaklingum og fjölskyldum með lágar tekjur öruggt húsnæði á boðlegum kjörum.
Biðlistar eftir félagslegu húsnæði lengdust til muna eftir efnahagshrunið 2008 þegar ófremdar ástand ríkti á húsnæðismarkaði. Á kjörtímabilinu 2014 – 2018 fjölgaði félagslegum leiguíbúðum í Reykjavík um 400, og gera áætlanir borgarinnar ráð fyrir að fjölga þeim um 600 til viðbótar til ársins 2023. Tæplega áttatíu prósent alls félaglegs leiguhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu eru í Reykjavik, en þar búa rúmlega 56% íbúa svæðisins. Í Reykjavík eru um 20 félagslegar íbúðir fyrir hverja þúsund íbúa, en í Garðabæ er sama hlutfall um 2 íbúðir á hverja þúsund íbúa. Ef hlutfall félagslegra leiguíbúða væri það sama í öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu og í Reykjavík væru því um þúsund fleiri félagslegar leiguíbúðir á svæðinu en raunin er.

Nú þegar hafa verið keyptar 82 ibúðir á fyrstu átta mánuðum ársins og gera áætlanir ráð fyrir að fjölga þeim um alls 125 til ársloka. Á fyrstu sjö mánuðum ársins fengu alls 117 einstaklingar og fjölskyldur úthlutað félagslegu leiguhúsnæði í Reykjavík. Í ágúst var 31 íbúð úthlutað, eða einni á hverjum einasta degi. Umsækjendum á biðlista eftir félagslegu húsnæði hefur fækkað um rúm 20% frá sama tíma í fyrra. Núverandi áform um fjölgun íbúða byggja á ítarlegri þarfagreiningu sem er raunhæf í framkvæmd.

Vinstri græn í borginni standa vaktina hér eftir sem hingað til og halda áfram á þeirri braut sem mörkuð hefur verið.

Elín Oddný Sigurðardóttir
varaborgarfulltrúi Vinstri grænna.

Greinin birtist á Vísi

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search