Search
Close this search box.

Bjóðum fólk velkomið

Deildu 

Við sem búum á Íslandi höfum það alla jafna mjög gott. Þó að veðrið leiki okkur stundum grátt búum við mjög vel. Við erum eitt ríkasta land í heimi og höfum byggt okkur öflugt velferðarkerfi. Við höfum flest nóg að bíta og brenna en sannarlega er það  viðvarandi verkefni að tryggja öllum gott viðurværi alltaf. Þannig virkar gott og heilbrigt samfélag.

Það ætti því ekki að koma okkur á óvart að hingað sækir fólk sem vill setjast að og búa sér gott heimili. Sá hópur er ekki einsleitur. Þar er um að ræða fólk sem flýr hræðilegar aðstæður og fólk með mjög háar tekjur sem hefur heyrt að hér sé friðsælt að vera í fallegu landi. Og allt þar á milli. Það er lykilatriði að við séum tilbúin að taka á móti fjölbreyttri flóru fólks.

Við höfum til þess ákveðna ferla og reglur. En ferlar og reglur ná bara ákveðið langt þegar talað er um fólk og stundum kemur í ljós að ferlarnir eru ekki gagnlegir. Sem dæmi má nefna veitingu atvinnuleyfa hér á landi en þar eru alltof margar flækjur. Til að sækja um atvinnuleyfi hér á landi má til dæmis ekki vera á landinu og þú verður að vera með ráðningarsamning og í sumum tilfellum þarf atvinnurekandi að tryggja húsnæði. Þannig er fólk alfarið upp á sinn atvinnurekanda komið. Það er ekkert svigrúm fyrir fólk sem hefur ef til vill komið hingað, kunnað vel við, sig og viljað setjast að. Til þess þarf að fara aftur úr landi. Ef þú kemur frá löndum utan Evrópska efnahagssvæðisins, EFTA eða Færeyja, mæta þér ótal flækjustig. Þannig útilokum við fólk. Við útilokum fjölbreyttan hópfólks sem vill búa hér og vill taka þátt í að auðga okkar góða samfélag.

Ég hef ásamt þingflokki Vinstri grænna lagt fram þingsályktunartillögu þess efnis að tekið verði á þessum málum. Tillagan snýr að því að stofnaður verði starfshópur sem fengi það verkefni að móta tillögur um að auka réttindi útlendinga til atvinnu hér á landi. Það er mikilvægt að við slíka vinnu sé mikið samráð við aðila vinnumarkaðarins og því leggjum við til að í þeim hópi eigi sæti fulltrúar Alþýðusambands Íslands, BSRB, BHM, Samtaka atvinnulífsins, Samtaka íslenskra sveitarfélaga, forsætisráðuneytis, fjármála- og efnahagsráðuneytis, dómsmálaráðuneytis og félagsmálaráðuneytis.

Fólksflutningar hafa aukist mjög síðustu ár vegna styrjalda, borgarastríða, skertra mannréttinda og loftslagsvár meðal annars. Það er því mikilvægt að við lítum í eigin barm og athugum hvaða ferla má bæta til að fólk viti hvert það getur leitað. Undanfarin ár hefur umsóknum um alþjóðlega vernd hér á landi til dæmis fjölgað mikið. Sumir sem sækja um alþjóðlega vernd hér á landi falla utan skilgreininga um það hverjir skuli hljóta vernd, svo sem um pólítíska flóttamenn. Fái fólk synjun um alþjóðlega vernd hefur það enga aðra leið til að óska þess að vera hér áfram. Kerfið, sem er mannanna verk, leyfir það ekki.

Þetta viljum við Vinstri græn laga. Við viljum búa hér til kerfi og samfélag sem tekur fólki opnum örmum. Til þess eru margar leiðir. Að bæta ferla í kringum atvinnuleyfi útlendinga er eitt skref í rétta átt.

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingflokksformaður Vinstri grænna

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search