Search
Close this search box.

Blómstrandi barnamenning

Deildu 

Barnamenning hefur verið með miklum blóma hér á landi á undanförnum árum. Til stendur að gera enn betur á því sviði með þingsályktunartillögu um eflingu barnamenningar sem nú liggur fyrir Alþingi. Meginmarkmiðið hér eru að auka samhæfingu og efla stefnumótun á sviði barnamenningar, að auka framboð lista, menningar- og listfræðslu fyrir börn og ungmenni í skólastarfi og að festa í sessi starfsemi barnamenningarverkefnisins List fyrir alla og Barnamenningarsjóðs Íslands. Þá er lagt til að komið verði á fót Miðstöð barnamenningar sem falin verði yfirstjórn með barnamenningarverkefninu List fyrir alla og starfsemi Barnamenningarsjóðs Íslands.

Barnamenningarsjóður markaði þáttaskil

Barnamenningarsjóður Íslands var stofnaður á 100 ára fullveldisafmæli Íslands. Þá var ákveðið að setja 100 milljónir árlega í sjóðinn til að efla listir og menningu í þágu barna og að hann skyldi starfa í fimm ár. Sjóðurinn hefur stutt við sköpun, listir og virka þátttöku barna í menningarlífi ásamt því að stuðla að samfélagsvitund, lýðræðislegri virkni barna í samfélaginu og styðja við að innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Frá 2019 til 2022 var 371,5 milljónum króna úthlutað úr Barnamenningarsjóði Íslands til 149 verkefna um allt land með góðum árangri. Nú þegar framhald sjóðsins er metið var ákveðið að skoða mögulega samlegð Barnamenningarsjóðsins við Barnamenningarverkefnið List fyrir alla sem sett var á laggirnar 2016, en megintilgangur þess er að miðla listviðburðum til grunnskólabarna um land allt og jafna þannig aðgengi að fjölbreyttum og vönduðum listviðburðum óháð búsetu og efnahag. Með verkefninu gefst börnum og listamönnum meðal annars tækifæri til að móta og skapa listverkefni í sameiningu.

Aðgengi að menningu skiptir máli

Starfsemi á sviði menningar og starfsumhverfi listafólks hefur samfara samfélagslegum breytingum þróast mikið á undanförnum árum. Hafa verður í huga þá menningarlegu fjölbreytni sem býr í íslensku samfélagi og mikilvægi þess að menningarlífið endurspegli hana. Í því samhengi er mikilvægt að efla menningarlæsi í samfélaginu og tryggja öllum börnum og ungmennum aðgengi að menningarupplifunum, listfræðslu og þátttöku í listsköpun við hæfi. Fjölbreytni í menningarlífi stuðlar að jöfnuði og aukinni velsæld í samfélaginu. Aðgerðaáætlun um eflingu barnamenningar byggist á þeirri framtíðarsýn að menningarlæsi, menningarþátttaka og miðlun menningararfs verði veigamikil atriði í uppvexti og skólastarfi barna og ungmenna og að starfsemi á þessu sviði endurspegli fjölbreytta samsetningu þjóðarinnar og þá alþjóðlegu menningu sem býr í íslensku samfélagi.

Við teljum ekki nokkurn vafa leika á að List fyrir alla og Barnamenningarsjóður komu til móts við raunverulega þörf í íslensku menningar- og listalífi. Nú er lykilatriði að byggja áfram upp á þeim góða grunni og tryggja að allar kynslóðir barna fái tækifæri til að sinna menningar- og listastarfi á sínum eigin forsendum. Það er grunnur að góðri framtíð.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Lilja D. Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search