Search
Close this search box.

Börnin okkar í Kópa­vogi

Deildu 

Samfélagið þarf að bregst við strax

Ekkert barn á að líða fyrir fátækt foreldra sinna, ekkert foreldri á að þurfa að velja á milli að borga skólamáltíð fyrir barnið sitt eða annan reikning. Við sem samfélag eigum að geta gripið inn í og aðstoðað þar sem við á. Börnin okkar eiga rétt á að alast upp án þess að þurfa að bera þá ábyrgð að hugsa um næstu máltíð, næstu mánaðarmót eða næstu önn, þau eiga að njóta þess að vera börn, ná að læra og stunda frístundir.

Gjaldfrjálsir skólar

Í stefnuskrá Vinstri Grænna er stefnt að ókeypis leikskólum og ókeypis skólamáltíðum fyrir grunnskólabörn. Mörg börn búa við og undir fátæktarmörkum, því þarf að huga sérstaklega að þeim hópi til að gera þeim kleift að mennta sig og stunda tómstundir eins og íþróttir, tónlistarnám, skátana eða annað sem hugur þeirra stefnir til.

Skólamáltíðir í grunnskólum Kópavogs kosta 10.553 krónur á mánuði og leikskólagjald fyrir 8 klst, dag kostar 35.403 krónur á mánuði. Fullt gjald fyrir frístund í 41-60 klst, á mánuði eru 19.699 krónur á mánuði en lækka með systkinaafslætti og falla alveg niður við fjórða systkini.

Undirrituð vill að engir foreldrar eða börn þurfi að líða skort vegna fátæktar. Ekki er raunhæft að fella niður öll þessi gjöld á einu bretti og því þarf að vinna málið í ákveðnum skrefum.

Tekjutenging

Ég vil að byrjað sé á tekjutengingu, þá yrðu heildartekjur fjölskyldu að vera undir ákveðnum viðmiðum til að hægt sé að fella út gjöld vegna máltíða og leikskóla, eða veita afslátt. Tekjutenging yrði þá fyrir bæði einstaklinga og einnig fyrir einstaklinga í sambúð. Hægt væri að nýta sama viðmið til að hækka frístundarstyrk til sömu fjölskyldna sem börnin gætu nýtt sér í frístundir utan skólatíma. Passa verður upp á að gjöld hækki samt ekki til þeirra foreldra sem borga áfram fullt gjald, þannig að þau gjöld sem nú eru væru grunngjöldin sem svo yrði veittur afsláttur af eftir tekjum foreldra. Þannig nýtum við fjármagnið sem best og tryggjum að þau sem þurfi njóti þess stuðnings sem samfélagið getur boðið. Börnin okkar skipta allt samfélagið máli og það er samfélagslegt verkefni að tryggja þeim öllum sömu tækifæri. Þannig gerum við Kópavog enn betri bæ.

Ásta Kristín Guðmundsdóttir, höfundur er félagsráðgjafi og formaður VG í Kópavogi.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search