EN
PO
Search
Close this search box.

Breytingin byrjar heima

Deildu 

Í fyrravetur sýndi Ríkissjónvarpið þættina hvað höfum við gert. Þeir vöktu verðskuldaða athygli.  Í kjölfar þeirra ættum við að spyrja okkur: Hvað getum við gert?

Okkur hefur lengi verið tamt að trúa því að á Íslandi væri eitt grænasta hagkerfi heimsins, lítil mengun og mikið frumkvæði í umhverfisvænum lifnaðarháttum. Að við lifðum í mikilli og meiri sátt við náttúruna en flestar aðrar þjóðir. Að til okkar mætti líta sem fyrirmyndar þegar kæmi að loftslagsmálum. En er þá öll sagan sögð? Ræktum við allt það grænmeti, eða framleiðum við öll þau matvæli sem við gætum? Nei langt í frá. Gætum við gert betur í fullnýtingu þeirra orku sem við framleiðum og notum? Já svo sannarlega. Erum við nógu framarlega þegar kemur að umhverfisvænum lausnum fyrir fjölskyldur og fyrirtæki? Nei sennilega ekki. Græn orka er ekki allt ef hún er ekki notuð til umhverfisvænna verka.

Sem einstaklingar er margt sem við getum gert. Við getum minnkað neyslu, endurunnið, endurnýtt. Við getum farið á milli með vistvænni hætti, gengið, hjólað eða notað almenningssamgöngur. Við getum tví- og þrímennt í bíla. Við getum borðað minna kjöt, meira grænmeti, meiri fisk. Við getum horft til þess hvaðan maturinn okkar kemur. Hefur hann ferðast meira en meðal Íslendingur ætti að gera á ári? Er maturinn okkar framleiddur í sátt við náttúruna? Ef okkur langar í  bláber á miðjum vetri er þá ekki betra að þau komi frá Spáni en Perú, eða bara frosin íslensk? Ættum við að setja „ferðaskatt“ á matvæli? Kannski ekki, en við mættum alveg setja ferðatakmarkanir á þann mat sem við borðum. Til dæmis með það að markmiði  að borða ekki víðförulan mat nema algerlega spari.

Grænar lausnir og grænar ívilnanir

En hvað með fyrirtæki og opinbera aðila? Ættu ekki fyrirtæki að verðlauna (eða ívilna með einhverjum hætti) þá starfsmenn sem nota umhverfisvæna ferðamáta til að komast í vinnu? Ættu fyrirtæki að kaupa rafmagnshjól fyrir starfsfólk til styttri ferða? Ættu sveitarfélögin að skipuleggja hverfi þannig að  auðvelt sé að ganga og hjóla ? Ættu mötuneyti á vinnstöðum að leggja áherslu á nærfæði (e. slow food)? Ættu veitingastaðir að gera svipað? Svörin við þessum og ótal mörgum svipuðum grænum spurningum eru auðvitað, já.

Ríki og sveitarfélög ættu svo sannarlega að stuðla að grænum lausnum og grænni nýsköpun. Nýsköpunarstyrkir fyrir grænar lausnir ættu að vera regla þegar kemur að styrkveitingum. Fyrirtæki og stofnanir sem draga úr kolefnislosun, binda meira, flokka meira, endurnýta meira ættu að geta fengið ívilnanir frá gjöldum, umfram lægri kolefnisgjöld.

Við viljum kolefnishlutlaust Ísland fyrir árið 2040. Þangað til eru bara 20 ár. Við þurfum öll að byrja strax að draga úr eigin losun, fyrirtæki og stofnanir líka. Sumt er auðvelt, en annað erfiðara. Þar sem ekki eru tök á að draga úr losun eigum við að auka bindingu. En þetta byrjar allt á okkur sjálfum.

Höfundur er þingmaður Vinstri grænna.

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search