Search
Close this search box.

COVID-19: Heilbrigðisráðherra veitir 200 milljónir króna í aukna endurhæfingu

Deildu 

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur falið Sjúkratryggingum Íslands að semja um aukna endurhæfingu, meðal annars fyrir fólk sem glímir við eftirköst í kjölfar veikinda af völdum COVID-19 en einnig fyrir þá sem eru á biðlista eftir endurhæfingu af öðrum ástæðum. Allt að 200 milljónum króna verður varið til verkefnisins.

Eftir að veirusjúkdómurinn COVID-19 barst til landsins hefur komið í ljós að ýmsir sem hafa veikst glíma við eftirköst af völdum sýkingarinnar á borð við verki, þreytu, þrekleysi og fleira og hafa sumir orðið óvinnufærir af þessum sökum. Talin er hætta á því að eftirköstin geti orðið langvarandi og valdið örorku ef ekkert er að gert. Endurhæfing á réttum tíma í kjölfar veikinda í samræmi við þarfir viðkomandi einstaklinga getur skipt sköpum í þessu sambandi. Reykjalundur hefur tekið við fólki úr þessum hópi og 30 manns eru á biðlista hjá stofnuninni í þörf fyrir endurhæfingu eftir COVID-19 veikindi.

Fjöldi fólks bíður eftir endurhæfingu af ýmsum ástæðum og hjá Reykjalundi er biðtíminn frá fjórum vikum og allt að einu ári. Brýnt er að bregðast við mikilli þörf fyrir endurhæfingu með því að efla þennan þátt í heilbrigðiskerfinu og auka framboð þjónustunnar.

Á liðnu ári hófst vinna við mótun endurhæfingarstefnu á vegum heilbrigðisráðherra sem fól m.a. í sér að kortleggja endurhæfingarþjónustu í landinu, greina styrkleika og veikleika í skipulagi þjónustunnar og benda á leiðir til að bæta nýtingu þeirra endurhæfingarúrræða sem eru fyrir hendi. Ráðherra segir mikinn styrk fólginn í þeim tillögum að endurhæfingarstefnu sem nú liggja fyrir þegar teknar eru ákvarðanir um hvernig fjármunum skuli best varið til þessarar mikilvægu þjónustu:

„Endurhæfing skiptir í mörgum tilvikum sköpum um það hvernig fólki reiðir af í kjölfar slysa, veikinda eða annarra áfalla. Það þarf að sinna þessum mikilvæga þætti heilbrigðiskerfisins mun betur en gert hefur verið hingað til, meðal annars með því að skýra skipulag þessarar þjónustu, efla og samræma faglegt mat á þörf fólks fyrir endurhæfingu og stuðla þannig að skynsamlegri forgangsröðun í þágu sjúklinga og sem bestri nýtingu fjármuna.“ segir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search