Search
Close this search box.

Dagdvöl og hjúkrunarrými í Hafnarfirði

Deildu 

Heilbrigðisráðherra hefur veitt Hafnarfjarðarbæ rekstrarheimild fyrir tólf nýjum dagdvalarrýmum fyrir fólk með heilabilun. Hafnarfjarðarbær mun útvega húsnæði fyrir reksturinn og ábyrgjast að þjónusta við notendur verði veitt á faglegum grunni í samræmi við þarfir fólks með alzheimer og aðra minnissjúkdóma. Leitað verður eftir samvinnu við Alzheimersamtökin sem faglegum bakhjarli þjónustunnar. Ráðherra tilkynnti um ákvörðun sína við opnun nýja hjúkrunarheimilisins Sólvangs í Hafnarfirði en þar hafa verið opnuð 60 ný hjúkrunarrými.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segist afar ánægð með að hafa getað orðið við ósk bæjarfélagsins um að auka þessa mikilvægu þjónustu, því þörfin sé brýn: „Bætt heilbrigðisþjónusta við aldraða samhliða stórsókn í fjölgun hjúkrunar- og dagdvalarrýma er áherslumál sem ég hef sett í sérstakan forgang. Vinna við stefnumótun í málefnum fólks með heilabilun er komin vel á veg og það er alveg ljóst að fjölgun sérhæfðra dagdvalarrýma fyrir fólk með alzheimer og aðra minnissjúkdóma felur í sér mikla bót fyrir þennan sjúklingahóp og aðstandendur þeirra“ segir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.

Í Hafnarfirði hefur verið rekin sértæk dagdvöl fyrir fólk með heilabilun frá árinu 2006 í Drafnarhúsi. Hafnarfjararbær hefur lagt rekstrinum til húsnæði en reksturinn hefur verið á hendi Alzheimersamtakanna. „Við höfum lengi talað fyrir aukinni þjónustu og fögnum því mjög ákvörðun ráðuneytisins. Í Drafnarhúsi eru í dag 22 einstaklingar í sérhæfðri þjálfun og tómstund sem er þessum hópi og aðstandendum þeirra afar mikilvæg. Nú verður hægt að þjónusta 12 einstaklinga til viðbótar og vonandi enn fleiri þegar fram líða stundir. Mikill skortur er á dagdvalarrýmum fyrir fólk með heilabilun og brýn þörf á aukinni þjónustu sem eykur lífsgæði einstaklinganna“ segir Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðar.

Drög að stefnu í málefnum einstaklinga með heilabilun voru birt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda 24. júní síðastliðinn og rennur umsagnarfrestur út 1. september næstkomandi.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search