Search
Close this search box.

Drangar í friðlýsingu

Deildu 

Umhverfisstofnun hefur kynnt áform um friðlýsingu Dranga á Ströndum sem óbyggð víðerni. Áformin eru kynnt í samstarfi við landeigendur og sveitarfélagið Árneshrepp.

Jörðin Drangar er yfir 100 ferkílómetrar að flatarmáli og nær frá hábungu Drangajökuls að sjó á milli Bjarnarfjarðar og Drangavíkur. Drangar eru landnámsjörð, þar sem Eiríkur rauði bjó eftir föður sinn og má færa líkur að því að þar hafi sonur hans, Leifur heppni fæðst. Land jarðarinnar er að langmestu leyti óbyggð víðerni. Landslag er tilkomumikið, jarðfræði fjölbreytileg, gróðurfar sérstakt og náttúrufegurð almennt. Víðernisupplifun er mikil og svæðið nær óraskað. Svæðið er hluti af víðáttumesta, samfellda óbyggða víðerni á Vestfjörðum.

Nánari upplýsingar og tillögu að friðlýsingarmörkum má sjá á vef Umhverfisstofnunar.

Áform um friðlýsingu eru kynnt í samræmi við 2. mgr. 38. gr. náttúruverndarlaga en gert er ráð fyrir að svæði sem ekki eru á framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár séu kynnt sérstaklega.

Upplýsingar á vef Umhverfisstofnunar

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search