PO
EN

 Drögum úr ó­jöfnuði í heilsu­fari og lífs­líkum

Deildu 

Síðasta haust sótti undirrituð málþing BSRB og ASÍ um heilbriðgðismál, þar flutti meðal annarra Sara S. Öldudóttir, sérfræðingur á sviði stefnumótunar og greiningar hjá ASÍ, erindið: Bilið sem þarf að brúa,ójöfnuður í heilsufari og mótsagnir í öldrunarmálum.

Í erindi hennar kom fram að mælanlegur ójöfnuður er á heilsufari og lífslíkum eftir menntun, kyni og fjárhagslegri stöðu. Þar komu fram tölur um hlutfall fólks á vinnumarkaði sem neitaði sér um heilbrigðisþjónustu (Dæmi: Launfólk sem neitaði sér um tannlæknaþjónustu 29,1% og atvinnulausir 46,9% á 6 mánaða tímabili).

Því er spáð að hlutfall 67 ára og eldri af mannfjölda aukist úr 13% í 16% á næstu 10 árum en hjúkrunarrýmum hefur fækkað um helming frá árinu 2007. Á sama tíma fjölgar á biðlista eftir hjúkrunarrýmum og biðtími lengist – 1. Janúar 2021 voru 453 manns á biðlista, samkvæmt landlæknisembættinu.

Hvað á að koma í staðinn fyrir hjúkrunarrými? Jú, efld heimaþjónusta og dagþjónusta en beinlínis er gert ráð fyrir að ættingjar komi meira að umönnun sem er þegar töluverð.

Sérstaka athygli mína vakti umfjöllun Söru um hlutfall einstaklinga á aldrinum 18-64 ára sem segjast annast fatlaðan eða aldraðan ættingja eftir Evrópulöndum. Í Danmörku var það 0,7% þar sem ástandið er best í Evrópu, en á Íslandi, þar sem ástandið er verst, eru það 8,9%.

Á Íslandi er mjög há atvinnuþátttaka kvenna en umönnunarbyrði vegna ættingja á Íslandi árið 2018 skiptist ekki jafnt. Ljóst er að þetta hlutverk lendir meira á konum, fyrir aldursbilið 55-64 ára um 26% kvenna á móti um 20% karla. Það hefur verið sett í samhengi við aukna örorku kvenna á þessu aldursbili og vísbendingar um aukið brottfall af vinnumarkaði.

Ekki eiga allir ættingja sem geta tekið að sér umönnun. Það þarf að auka jöfnuð og aðgengi að læknisþjónustu. VG vill að eldra fólk geti búið lengur heima með því að raunverulega efla félagslega heimaþjónustu fyrir aldraða og samþætta heimahjúkrun og félagslega heimaþjónustu í samstarfi ríkis og sveitarfélaga og fjölga búsetu- og þjónustuleiðum.

VG vill horfa heildstætt á alla félags- og velferðarþjónustu og tryggja samþættingu þjónustu ólíkra kerfa.

VG vill auka samráð við fólk sem nýtir velferðarþjónustu.

Margoft hefur verið vísað í doktorsritgerð Janusar Guðlaugssonar þar sem kannað var hver áhrif líkamsræktar eru á farsæla öldrun. Sú rannsókn leiddi í ljós að verulegur ávinningur er af fjölþættri heilsurækt og reglubundnu heilsueftirliti eldra fólks.

VG vill stóraukna heilsueflingu eldra fólks og sporna gegn einmanaleika.

Höfundur skipar 20. sæti á lista VG í Hafnarfirði.

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search