Search
Close this search box.

Dýrs­lega, fagra og villta Reykja­vík – vertu alltaf svona!

Deildu 

Þegar við hugsum um líffræðilega fjölbreytni og landvernd eru óbyggð svæði okkur oft ofarlega í huga. Hálendisþjóðgarðar og friðlýsingar til verndar ýmissa lífríkja og tegunda vekja oft mikla athygli í umræðunni og sitt sýnist hverjum í þeim efnum.

Borgir bera ábyrgð á um 75 prósent af kolefnislosun á heimsvísu og gegna því lykilhlutverki í baráttunni við loftslagsvána. Hins vegar búa borgir líka yfir heilmiklum líffræðilegum fjölbreytileika og náttúru og á það svo sannarlega einnig við um Reykjavík. Stefna stjórnvalda varðandi verndun vistkerfa í þéttbýli hefur aldrei verið skýrari en einmitt nú þegar Vinstri græn sitja við stjórnvölinn í ríki og borg. Á meðan umhverfisráðherra hefur nú þegar friðlýst fjórtán landsvæði og undirbýr tilurð stærsta þjóðgarðs í Evrópu er hafið samtal um friðlýsingar þriggja svæða í Reykjavík: Blikastaðakró, fjörur Grafarvogs og þangfjörusvæði í austanverðum Skerjafirði. Allt er þetta í anda þeirrar framsæknu stefnu sem þegar hefur verið mörkuð um vernd líffræðilegrar fjölbreytni í borginni.

Í þessu samhengi er vert að draga fram þrjú atriði sem styðja enn frekar við friðlýsingar og aukna verndun landsvæða innan borgarmarkanna:

Í fyrsta lagi er líffræðileg fjölbreytni og verndun vistkerfa í borgum mikilvægur þáttur baráttunnar við loftslagsbreytingar. Þetta endurspeglast í 11. markmiði Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun sem snýst einmitt um að byggja upp sjálfbærar borgir og samfélög og eitt af undirmarkmiðunum er að blása til sóknar til þess að vernda og tryggja náttúru- og menningararfleifð heimsins.

Í öðru lagi hafa vernduð landsvæði í borgum gildi umfram líffræðilega eiginleika sína. Með því að vernda borgarnáttúruna erum við líka að skapa til frambúðar menningarleg og félagsleg verðmæti sem seint verða metin til fjár. Þetta hefur sjaldan átt jafn vel við og nú, á tímum faraldra og sóttvarnaraðgerða, þegar ýmiss konar þjónusta og afþreying sem við höfum talið sjálfsagða liggur nú niðri um allan heim. Á slíkum tímum er náttúran griðastaður sem aldrei fyrr og við þurfum að tryggja að svo verði áfram með því að vernda náttúruminjar og aðgengi að þeim á höfuðborgarsvæðinu.

Í þriðja lagi hefur það sýnt sig og sannað að vernd náttúru í þéttbýli skapar fræðsluvettvang fyrir umhverfisvernd. Friðlýsingarverkefni með mikilli samfélagsþátttöku gefa tækifæri til að miðla þekkingu um líffræðilega fjölbreytni í borgum. Það getur síðan stuðlað að auknum áhuga á að standa vörð um önnur landsvæði og einstök náttúrufyrirbæri utan borgarmarkanna og auðvitað vakið með fólki væntumþykju og vitund um umhverfi sitt og mikilvægi þess fyrir líf okkar og velferð í samfélagi samtímans.

Á tímum loftslagsbreytinga af mannavöldum og hvers kyns faraldra og hamfara er það forgangsmál að stuðla að áframhaldandi umræðum og aðgerðum um vernd umhverfis, innan og utan borgarinnar. Friðlýsingarhjólin eru svo sannarlega farin að snúast eins og umhverfisráðherra hefur oft sagt og megi þau einnig fá að rúlla í Reykjavík.

Höfundar eru Líf Magneudóttir oddviti Vinstri grænna í Reykjavík og Eva Dögg Davíðsdóttir doktorsnemi í umhverfis- og þróunarfræðum.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search