PO
EN
Search
Close this search box.

Efnahagspólitík sem stuðlar að félagslegu réttlæti

Deildu 

Farsælasta undirstaða þróttmikils efnahagslífs er blandað hagkerfi þar sem hin efnamestu eru skattlögð umfram hin tekjulægri. Það er stefna Vinstri grænna og hefur sú hugsjón skilað mestri hagsæld og jöfnuði í þeim samfélögum þar sem hún hefur verið rekin. Breiðu bökin í samfélaginu og atvinnugreinar sem standa vel þurfa að leggja meira til samfélagsins og vera stolt af því. Þá á innheimta gjalda af nýtingu sameiginlegra auðlinda að vera ein af undirstöðum fjármögnunar velferðarkerfisins.

Skattkerfið áhrifamesta jöfnunartækið

Skattkerfið er langáhrifamesta tæki samfélagsins til að auka jöfnuð og sanngirni í samfélaginu. Ríkisstjórnin hækkaði fjármagnstekjuskatt og innleiddi þriggja þrepa tekjuskattkerfi á síðasta kjörtímabili sem voru mikilvægir liðir í því að jafna kjörin. Þá erum við Vinstri græn óhrædd við að beita skattkerfinu svo það þjóni velferðarsamfélaginu og ýmsum félagslegum markmiðum, svo sem í umhverfismálum, lýðheilsu og byggðamálum. Þar að auki teljum við löngu tímabært að tekið sé samtal um hvað sé ásættanlegur launamunur í samfélaginu. Það hefur sýnt sig að of mikill ójöfnuður, hvort sem hann er mældur í tekjum eða eignum, veldur samfélagslegu rofi milli ólíkra hópa samfélagsins. Vinna verður af öllum krafti gegn slíkri þróun. Það er hægt að gera til að mynda með hóflegum auðlegðarskatti á þau sem eiga miklar eignir eða þrepaskiptum fjármagnstekjuskatti sem ver betur ævisparnað hjá venjulegu fólki, en skattleggur auðmenn.

Velferðarpólitík vinstrisins

Við Vinstri græn stundum velferðarpólitík og viljum að samfélagið styðji með ríkulegum hætti við þau sem á þurfa að halda, hvort sem það er í gegnum örorkulífeyri, ellilífeyri, barnabætur, atvinnuleysisbætur, námslán eða önnur tilfærslukerfi. Velsæld verður þó ekki aðeins mæld í hagtölum heldur einnig í því hvernig fólki líður. Í stjórnartíð okkar höfum við innleitt nýja velsældarmælikvarða sem meta hagsæld, félagslegan auð, kynjasjónarmið og loftslagsmarkmið. Slíkir mælikvarðar gera það kleift að byggja efnahagsstjórn á fjölbreyttari sjónarmiðum en áður hefur verið gert. Þá viljum við að kynjagleraugun séu tekin upp í öllum ákvörðunum um hagstjórnina.

Stór skref í rétta átt

Seinni hluta nýliðins vetrar var gengið fá kjarasamningum til fjögurra ára á almennum vinnumarkaði og ríkisstjórnin kom inn í það með ríflegan kjarapakka. Sá kjarapakki er sniðinn að lágtekju- og fjölskyldufólki og eykur jöfnuð og félagslegt réttlæti í samfélaginu. Kjarapakkinn í heild sinni er eins og snýttur út úr nös á vinstristefnunni og er stórt skref í átt að því að draga almennt úr fátækt á Íslandi. Má þar nefna aukningu til barnabóta, húsnæðisbóta, hækkað þak í fæðingarorlofi og viðbót í stofnframlög inn í almenna íbúðakerfið til að byggja fleiri leiguíbúðir á viðráðanlegu verði fyrir lágtekjufólk. Síðast en ekki síst þá eru gjaldfrjálsar máltíðir í grunnskólum orðnar að veruleika, sem hafa um árabil verið baráttumál okkar Vinstri grænna enda ein skilvirkasta og besta leiðin til að draga úr fátækt á meðal barna. VG mun halda áfram að vinna að auknum jöfnuði í samfélaginu. 

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra og formaður VG

Greinin birtist í hátekjublaði Heimildarinnar, 23. ágúst 2024

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search