Search
Close this search box.

EFNT TIL UMRÆÐU UM HEILBRIGÐISSTEFNU

Deildu 

Það heilbrigða við þá umræðu sem heilbrigðisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, hefur efnt til um heilbrigðisstefnu til framtíðar, er hve vel hún er grunduð og hve víðfeðm hún er. Umræðan tekur til menntunar og mönnunar í heilbrigðisþjónustunni, stöðu rannsókna og vísindastarfs.

Fyrir þetta á heilbrigðisráðherra lof skilið.

Í gær efndi hún til umræðufundar um ýmsa þætti sem þyrfti að íhuga við stefnumótunina og voru þar til staðar, ekki aðeins toppar kerfisins eins og hefðbundið er, heldur einnig fulltrúar starfsfólks á borð við sjúkraliða en formaður þeirra tók þátt í umræðunni svo og vísindamenn sem vinna að rannsóknum sem tengjast heilbrigðismálum. Úr þessu spannst mikill vefur sem fróðlegt er að horfa til við ákvarðanir sem varhugavert gæti verið að taka án heildarsýnar.

Ráðherrann opnaði og lokaði umræðufundinum – sem er sá áttundi í langri fundaröð kynningar- og umræðufunda en hann fór fram fór í Veröld – húsi Vigdísar. En fundinum var ekki lokað meira en svo að hann er hægt að nálgast hér á þessari slóð:

Upptaka á stjórnarráðsvef

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search