Ályktun
Svæðisfélag VG á Austurlandi varar við hugmyndum sem koma fram í nýlegri kortlagningu á vegum Orkustofnunar á því sem kallaðir eru vænlegir smávirkjunarkostir á Austurlandi. Kortlagning nær til virkjanna með miklum og óafturkræfum umhverfisáhrifum og geta því hvorki talist smáar né vænlegar. Farið er fram á vandaðri vinnubrögð og orðræðu þegar rætt er um jafn dýrmætar og viðkvæmar auðlindir og náttúru Íslands.
Ályktun
Svæðisfélag VG á Austurlandi hvetur Alþingi að hraða vinnu við endurskoðun stjórnarskrárinnar og þá sérstaklega vinnu við auðlindaákvæðið þar sem taka þarf af allan vafa um eignarhald þjóðarinnar á helstu náttúruauðlindum.
Ályktun
Svæðisfélag VG á Austurlandi hvetur Alþingi til að láta ný lög um Hálendisþjóðgarð verða að veruleika sem allra fyrst. Með Hálendisþjóðgarði verður stígið mikilvægt skref í verndun ósnortinna víðerna sem eiga engan sinn líka á heimsvísu.
Ályktun
Svæðisfélag VG á Austurlandi mótmælir því að kvóti til strandveiða hafi verið minnkaður á milli ára og hvetur til þess að strandveiðar verði efldar við landið. Strandveiðar, líkt og grásleppuveiðar, eru forsenda byggðar í mörgum af smæstu byggðarlögum landsins, og afleiðingar frekari skerðingar á þessum veiðum því mjög neikvæðar.