Öflugt háskólanám og kraftmiklar rannsóknir eru undirstaða velsældar hvers samfélags. Þetta er ekki bara einhver frasi, heldur staðreynd. Þess vegna skiptir miklu máli að háskólarnir okkar séu samkeppnishæfir þannig að þeir laði til sín besta fólkið, hvort sem við eigum við kennara, nemendur eða annað starfsfólk. Þó að aukið fjármagn leysi ekki allan vanda, þá er lágmarksfjármögnun grundvöllur þess að skapa möguleika fyrir íslenska háskóla til þess að vera samkeppnishæfa við háskóla í þeim löndum sem við berum okkur helst saman við. Það er því miður ekki staðan í dag.
Háskólunum er lífsnauðsynlegt að laða til sín góða nemendur, bæði héðan frá Íslandi en líka erlendis frá. Öflug rannsóknateymi samanstanda af áhugasömum, forvitnum og metnaðarfullum námsmönnum undir leiðsögn framúrskarandi kennara og annars rannsóknafólks háskólanna. Góðir háskólar skila síðan út í samfélagið nýjum hugmyndum, leiða til nýsköpunar og tækniþróunar, nýrra aðferða, meiri framleiðni og vaxtar samfélagsins. Afrakstur rannsókna og framlag nemenda verður á öllum sviðum, í velferðarmálum, umhverfisvernd, á sviði mannréttinda, vinnuverndar, fjármálaþjónustu, í atvinnuvegunum og í raun alls staðar í samfélaginu. Til að þetta geti raungerst er einnig mikilvægt að tryggja sjálfstæði háskóla og akademískt frelsi þeirra.
En háskólanám er ekki einungis grundvöllur hagvaxtar og framþróunar samfélagsins. Háskólanám er einnig mikilvægt jöfnunartæki en jafnt aðgengi að slíku námi er stórt réttlætismál. Stórt skref var tekið nýverið með afnámi skólagjalda við Listaháskóla Íslands, en það hefur verið baráttumál okkar Vinstri grænna lengi. Þetta var mikilvægt skref í átt að jafnræði til listnáms. Með frekari fjárveitingum til háskólanna má líka auka og auðvelda aðgengi fatlaðs fólks að námi á háskólastigi, en þar er um stórt hagsmuna- og réttindamál að ræða.
Íslenskir háskólar eru umtalsvert verr fjármagnaðir en háskólar á hinum Norðurlöndunum, laun ekki nægjanlega samkeppnishæf og aðstaða mætti víða vera betri. Þrátt fyrir að ákveðin skref hafi verið stigin hjá stjórnvöldum á undanförnum árum, erum við enn alltof langt frá því að komast í mark. Ég er þeirrar bjargföstu trúar að fjármögnun háskólanna til samræmis við hin Norðurlöndin verði að vera eitt af forgangsverkefnum nýrrar ríkisstjórnar. Áhersla á öfluga háskólamenntun er góð fjárfesting sem skilar sér til lengri og skemmri tíma.
Höfundur er varaformaður Vinstri grænna og skipar 1. sæti á lista VG í Suðvesturkjördæmi.