Vinstri græn boða rafrænan flokksráðsfund dagana 28. – 29. ágúst. Áður hafði flokksráðsfundur verið auglýstur á Ísafirði en í ljósi stöðunnar í kórónuveirufaraldrinum hefur verið ákveðið að halda fundinn á netinu.
Ríflega hundrað manns eru í flokksráði VG, en einnig eru boðaðir til fundarins hópstjórar málefnahópa og félagar í VG sem skráðir eru í hópana, enda er þessi fundur helgaður málefnavinnu sem ljúka á fyrir landsfund VG sem haldinn verður í mars á næsta ári.
Það er von okkar að sem allra flestir VG félagar sjái sér fært að mæta á þennan fyrsta rafræna stórfund hreyfingarinnar, en auk vinnu í málefnahópum verður þar skemmtileg dagskrá og spennandi ávörp forystufólks Vinstri grænna. Endurgerð dagskrá og breytt skráning verður send út frá skrifstofu VG á næstu dögum.