Search
Close this search box.

Fögnum Degi öldrunar

Deildu 

Dagur öldrunar er haldinn í dag í sjötta sinn. Heilbrigð öldrun er málefni sem við viljum öll láta okkur varða. Eldra fólk lifir lengur en áður og er virkara og hraustara en nokkru sinni fyrr. Þjónusta við eldra fólk þarf að þróast í takt við þetta.

Gott að eldast komið á skrið

Þingsályktunartillaga mín um þróun þjónustu við eldra fólk var samþykkt á Alþingi vorið 2023 og hlaut verkefnið nafnið Gott að eldast. Stjórnvöld taka þar utan um málefni eldra fólks með nýjum hætti. Grunnhugsunin er sú að eldra fólk er ekki byrði á samfélaginu heldur hefur það ótvírætt virði. Félags- og vinnumarkaðsráðuneyti og heilbrigðisráðuneyti vinna saman að því að koma verkefninu til framkvæmdar.

Útrýmum aldursfordómum

Ráðuneyti mitt hefur til dæmis staðið fyrir vitundarvakningu um heilbrigða öldrun í tengslum við Gott að eldast. Með henni er stefnt að því að minnka aldursfordóma og öldrunarfordóma með aukinni þekkingu um heilbrigða öldrun. Í því samhengi er mikilvægt að almenningur hafi gott aðgengi að traustum upplýsingum. Ein af þeim aðgerðum sem ráðist hefur verið í er að útbúa svokallaðan „lífsviðburð“ inn á Ísland.is undir heitinu „Að eldast“. Þar koma fram ýmsar hagnýtar upplýsingar fyrir fólk á þessu skeiði lífsins, allt frá heilsueflingu til tómstundastarfs, og frá fjármálum til heilbrigðisþjónustu. Þar er einnig að finna góð ráð um líkamlega, hugræna og félagslega virkni, afþreyingu og næringu. Ég hvet öll til að kynna sér þessar upplýsingar.

Drögum úr félagslegri einangrun

Ég hef einnig verið talsmaður þess að draga úr félagslegri einangrun eldra fólks, en vitað er að einmanaleiki rýrir lífsgæði og styttir jafnvel ævina. Ég hef nú gert samning við sex sveitarfélög um stöðugildi svokallaðra tengiráðgjafa. Sveitarfélögin eru öll þátttakendur í þróunarverkefnum um samþætta heimaþjónustu eldra fólks. Um er að ræða starfsmenn sem hafa það verkefni að tengja þá íbúa í samfélaginu sem eru taldir félagslega einangraðir við annað fólk. Um nýjung er að ræða og lögð áhersla á að þróa ný stöðugildi til framtíðar til að takast á við þá áskorun sem einangrun fólks er í nútíma samfélögum.

Aukum samskipti kynslóða

Að sama skapi hef ég talað fyrir samgangi milli kynslóða, keðjunni sem gengur frá þeim elstu í samfélaginu okkar til þeirra yngstu. Ég varð sjálfur þeirrar gæfu aðnjótandi sem barn að alast upp í daglegum samskiptum við ömmu mína. Samskipti milli kynslóða eru nauðsynleg til að menning og þekking kynslóða flytjist á milli og búa til verðmætan félagsskap. Ekki síst býr aukinn samgangur kynslóðanna til betra velferðarsamfélag sem þarf að rúma okkur öll.

Til hamingju með Dag öldrunar.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search