PO
EN

Forval ákveðið hjá VG í Suðurkjördæmi

Deildu 

Kjördæmisráð Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs í Suðurkjördæmi ákvað á fundi sínum í kvöld að efna til forvals fyrir Alþingiskosningarnar í september á næsta ári.

Efnt var til atkvæðagreiðslu um málið og var mikill meirihluti fundarmanna fylgjandi þeirri leið að hafa forval en ekki uppstillingu á framboðslistann. Nú þegar hafa nokkrir lýst vilja sínum til að skipa efstu sæti listans.  

Núverandi þingmaður VG í Suðurkjördæmi Ari Trausti Guðmundsson gefur ekki kost á sér til endurkjörs, en hann stýrði fundi kjördæmisráðs í kvöld. Kosin var kjörstjórn á fundinum sem hittist á fyrsta fundi í næstu viku og skiptir með sér verkum, en hana skipa fulltrúar tilnefndir af formönnum svæðisfélaga VG í kjördæminu.

Ákveðið var að formaður kjördæmisráðsins Valgeir Bjarnason myndi starfa með kjörstjórn.

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search