Vinstrihreyfingin grænt framboð í Norðausturkjördæmi auglýsir eftir frambjóðendum á lista hreyfingarinnar í kjördæminu. Framboðsfrestur rennur út á miðnætti 23. janúar 2021.
Þau sem gefa kost á sér skulu tilkynna það skriflega til kjörstjórnar í tölvupósti á netfangið nordaustur@vg.is Þau sem vilja stinga upp á frambjóðanda geri það með sama hætti fyrir 18. janúar og mun kjörstjórn þá leita eftir samþykki þeirra sem bent hefur verið á. Öll sem áhuga hafa á að koma hugsjónum VG um kvenfrelsi, félagslegan jöfnuð, umhverfisvernd og friðarstefnu í framkvæmd eru hvött til að gefa kost á sér.
Kjörfundur verður með rafrænnn og fer fram 13. – 15. febrúar 2021. Kjördæmisstjórn Norðausturkjördæmis annast kynningu á frambjóðendum með sérstöku kynningarefni og fundum. Forvalsreglur má nálgast á heimasíðu VG.