Vinstri græn í Reykjavík ákváðu einróma á félagsfundi í kvöld að viðhafa rafrænt forval fyrir komandi Alþingiskosningar 25. september.
Reykjavíkurkjördæmi heldur sameiginlegt forval fyrir bæði kjördæmin og kosið verður í átta efstu sætin, sem þýðir fjögur efstu í hvoru kjördæmi, Reykjavík norður og Reykjavík suður.
Kjörstjórn var kosin á fundinum sem fær það verkefni að skipuleggja og útfæra forvalið.
Forvalið stendur í nokkra daga og hægt verður að kjósa hjá skrifstofu VG fyrir þá sem það vilja.
Með niðurstöðu Reykjavíkurkjördæmanna hefur VG ákveðið forval í fjórum af fimm kjördæmum.
Norðvesturkjördæmi tekur ákvörðun á fundi morgun.