Search
Close this search box.

Framboðslisti Vinstri grænna í Borgarbyggð

Deildu 

Framboðslisti Vinstri grænna í Borgarbyggð var samþykktur á félagsfundi í dag, sunnudag 20. mars 2022. Thelma Harðardóttir er oddviti listans. Thelma er 26 ára verkefnastjóri hjá Sambandi sveitarfélaga á Vesturlandi. Hún kemur ný inn í pólitíkina en hefur tekið forystu í náttúruverndarbaráttu í sinni heimasveit, en Thelma er frá Skarðshömrum í Norðurárdal. Brynja Þorsteinsdóttir er í 2. sæti. Brynja er leiðbeinandi á leikskólanum Uglukletti í Borgarnesi og hefur verið varamaður í sveitarstjórn Borgarbyggðar undanfarin þrjú ár ásamt því að hafa setið í fjölda nefnda og ráða á vegum VG í Borgarbyggð. Brynja býr í Borgarnesi. Friðrik Aspelund, skógfræðingur og leiðsögumaður, er í 3. sæti. Friðrik hefur verið virkur í starfi Vinstri grænna og sveitarstjórnarmálum í Borgarbyggð um árabil. Friðrik býr á Hvanneyri. Listinn í heild er sem hér segir:

1            Thelma Dögg Harðardóttir, 26 ára, Verkefnastjóri, Skarðshömrum, Norðurárdal

2            Brynja Þorsteinsdóttir, 42 ára, Leiðbeinandi á leikskóla, Borgarnesi

3            Friðrik Aspelund, 59 ára, Skógfræðingur og leiðsögumaður, Hvanneyri

4            Guðrún Steinunn Guðbrandsdóttir, 49 ára, Grunnskólakennari, Borgarnesi

5            Bjarki Þór Grönfeldt Gunnarsson, 27 ára, Doktorsnemi, Brekku 2, Norðurárdal

6            Lárus Elíasson, 62 ára, Verkfræðingur og skógarbóndi, Rauðsgili, Reykholtsdal

7            Ísfold Rán Grétarsdóttir, 28 ára, Háskólanemi, Borgarnesi

8            Helgi Eyleifur Þorvaldsson, 33 ára, Brautarstjóri og aðjúnkt, Lyngholti, Reykholtsdal

9            Rakel Bryndís Gísladóttir, 32 ára, Sjúkraliði, Borgarnesi

10          Guðmundur Freyr Kristbergsson, 33 ára, Ferðaþjónustubóndi, Háafelli, Hvítársíðu

11          Guðrún Hildur Þórðardóttir, 64 ára, Verkakona, Furugrund, Kleppjárnsreykjum

12          Kristberg Jónsson, 64 ára, Starfsmaður Borgarbyggðar, Litla-Holti, Stafholtstungum

13          Jónína Svavarsdóttir, 37 ára, Umsjónamaður tilrauna við Jarðræktarmiðstöð LbhÍ, Hvanneyri

14          Ása Erlingsdóttir, 51 árs, Grunnskólakennari, Laufskálum 2, Stafholtstungum

15          Flemming Jessen, 76 ára, Eldri borgari, Hvanneyri

16          Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir, 41 árs, Kennslustjóri, Hallveigartröð 7, Reykholti

17          Guðbrandur Brynjúlfsson, 73 ára, Bóndi, Brúarlandi 2, Mýrum

18          Ingibjörg Daníelsdóttir, 67 ára, Bóndi og kennari á eftirlaunum, Fróðastöðum, Hvítársíða

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search