Search
Close this search box.

Fram­tíðin ber að dyrum – ætlarðu að svara?

Deildu 

Á föstudaginn í síðustu viku birtum við í umhverfis- og heilbrigðisráði Reykjavíkur drög að vinnu stýrihóps um endurskoðun aðgerðaráætlunar í loftslagsmálum. Drögin eru afrakstur rúmlega árs samvinnu og víðtæks samráðs um nýja stefnu Reykjavíkurborgar til að stemma stigu við loftslagsógninni og ná markmiðum okkar um kolefnishlutleysi. Nokkrar yfirgripsmiklar og nýjar aðgerðir hafa litið dagsins ljós í stefnunni og stendur til að herða enn frekar á öðrum sem þegar eru í farvegi og framkvæmd. Í drögum að stefnunni er aðgerðunum skipt í sex meginmarkmið: Gönguvæn borg, Orkuskipti, Heilsueflandi samgöngur, Hringrásarhugsun, Vistvæn mannvirki og Kolefnisbinding. Þar fyrir utan eru gegnumgangandi og aðrar samverkandi aðgerðir sem ná þvert á meginmarkmiðin og varða rekstur Reykjavíkurborgar, aðlögun að loftslagsbreytingum og vitundarvakningu og nýsköpun í málaflokknum.

Það hefur lengi verið ljóst að stjórnvöld alls staðar í heiminum bera stærstu ábyrgðina á hvernig til tekst við að bjarga lífríkinu úr krumlum ágangs og mengunar. Það að þau setji sér stefnu og markmið og samþykki yfirlýsingar er auðvitað mikilvægt en eftirleikurinn af því skilur á milli feigs og ófeigs. Í drögum að þeirri stefnu sem verður rædd á borgarstjórnarfundi n.k. þriðjudag er boginn spenntur hátt enda megum við engan tíma missa. Verkefnið sem við erum með í fanginu er orðið að kapphlaupi við tímann og yfirvofandi og orðnar hamfarir. Til að ná umtalsverðum árangri í baráttunni þurfum við m.a. að fletta upp malbiki og endurheimta náttúruna í borginni. Við þurfum líka að hætta að moka auðlindum ofan í holu og verða nýtnari og nægjusamari. Að sama skapi má hvergi slá af þeim kröfum að öll uppbygging og endurskipulagning borgarinnar leiði af sér afar lítið eða ekkert sótspor, s.s. með uppbyggingu kolefnishlutlausra og vistvænna mannvirkja og samgönguæða. Það er líka ófrávíkjanlegt forgangsmál að skapa borg þar sem ekkert okkar þarf að nota mengandi fararskjóta til að sinna daglegum verkum. Eins bætir það heilsu fólks að hreyfa sig á milli staða og ganga sem mest fyrir eigin orku þannig að ávinningurinn af gönguvænni borg sem býður upp á fjölbreytta vistvæna ferðamáta er einnig ótvírætt lýðheilsumál.

Hér eru aðeins dregin upp nokkur sýnishorn af þeim aðgerðum sem má finna og kynna sér í drögum að nýrri loftslagsáætlun sem eiga það sammerkt að ná kolefnishlutleysi Reykjavíkur árið 2040. Ég vona að allir borgarbúar gefi sér tíma til að kynna sér þau og þær aðgerðir sem þar eru boðaðar. Allri rýni og e.t.v. viðbótartillögum má síðan koma á framfæri með því að senda skeyti á usk@reykjavik.is til 22. janúar.

Áratugur róttækra aðgerða í loftslagsmálum og í þágu umhverfisverndar og lífríkis ber nú að dyrum og kemur til með að setja varanlegt og lífvænlegt spor sitt á líf okkar og borgarsamfélagið. Við hljótum öll að fagna því og hleypa breytingunum inn.

Áætlunina má finna hér: Loftslagsáætlun 2021-2025.

Höfundur er formaður stýrihóps um endurskoðun Loftslagsáætlunar Reykjavíkurborgar.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search