Search
Close this search box.

Frumvarp forsætisráðherra um eignarhald á landi

Deildu 

Frumvarpi forsætisráðherra um breytingu á ýmsum lögum er varða eignarráð og nýtingu fasteigna var dreift á Alþingi í dag. Nái frumvarpið fram að ganga mun skapast yfirsýn yfir eignarhald á landi og stjórnvöld öðlast stýritæki til að stuðla að því að landnýting sé í samræmi við landkosti og með hagsmuni samfélagsins og komandi kynslóða að leiðarljósi. 

Í fyrsta lagi eru undanþáguheimildir vegna skilyrða fyrir fasteignakaupum aðila sem búsettir eru í ríkjum utan Evrópska efnahagssvæðisins skýrðar nánar, en ákvæði núgildandi laga um það efni eru almenn og óljós. 

Í öðru lagi er gert ráð fyrir að kaupverð eignar skuli koma fram í þinglýstu afsali, en kaupverð er meðal annars forsenda ákvörðunar fasteignamats. 

Í þriðja lagi er lagt til að Landeignaskrá á vegum Þjóðskrár Íslands verði vettvangur fyrir samræmda opinbera skráningu á landupplýsingum. 

Í fjórða lagi er sjónarmiðum um náttúruvernd, byggðaþróun og sjálfbærni gert hærra undir höfði í markmiðsákvæði jarðalaga. Sett verði inn skilyrði um samþykki fyrir aðilaskiptum að landi í skilgreindum tilfellum þar sem aðili á tiltekna stærð af landi fyrir. Þá er gert ráð fyrir aukinni upplýsingaskyldu tiltekinna lögaðila um eignarhald þeirra. Loks eru lögð til skýrari skilyrði fyrir afskráningulögbýla og lausn lands úr landbúnaðarnotum. 

Drög að frumvarpinu voru til umsagnar í samráðsgátt á tímabilinu 13.–27. febrúar og bárust 33 umsagnir. Í kjölfar umsagna og áframhaldandi samráðs við fagráðuneyti og stofnanir voru gerðar nokkrar breytingar á frumvarpinu og eru þær raktar í greinargerð. Þar á meðal voru gerðar breytingar á stærðarviðmiðunum vegna framangreindrar samþykkisskyldu og er nú gert ráð fyrir að hún eigi m.a. við ef kaupandi á fyrir fasteign eða fasteignir sem eru samanlagt 1.500 hektarar að stærð. Eigi kaupandi eða tengdir aðilar samanlagt 10.000 hektara eða meira skuli samþykki að jafnaði ekki veitt, nema sýnt sé fram á sérstök not fyrir landið.

Til ráðgjafar við samningu frumvarpsins voru Eyvindur G. Gunnarsson, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands og Friðrik Árni Friðriksson Hirst, framkvæmdastjóri Lagastofnunar Háskóla Íslands.

Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum er varða eignarráð og nýtingu fasteigna á vef Alþingis.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search