Við minnum á annan fund vetrarins hjá Eldri Vinstri grænum (EVG) á morgun, miðvikudag 11. nóvember kl. 20 að Stangarhyl 4, í húsnæði FEB. Fundurinn er bæði fróðlegur og skemmtilegur, fjallar um stjórnmál dagsins og hluta af sögu íslensks landbúnaðar:
1. Rósa Björk Brynjólfsdóttir, formaður VG, fjallar um stöðuna í stjórnmálum, næstu skref og niðurstöðu Flokksráðsfundar 8. nóv.
2. Kaffi, kleinur og spjall
3. Anna Fjóla Gísladóttir og Gísli B. Björnsson, fjalla um nýútkomna og stórmerkilega bók sína Réttir á Íslandi. Í bókinni er í fyrsta sinn skráðar upplýsingar um merkileg mannvirki og í henni eru myndir af 700 nafngreindum réttum ásamt fróðlegum texta um 250 þeirra.
4. Og söngur eins og ævinlega, nú undir styrkri stjórn Sigursveins Magnússonar og Sigrúnar V. Gestsdóttur.
Fundarstjóri: Guðrún Hallgrímsdóttir að venju
Almennt um fundina: Kaffihlé og kleinur um kl. 21.00. Munið seðil í kaffisjóðinn !
Sem fyrr er fólk hvatt til að taka með sér gesti því fundirnir eru öllum opnir.
Næsti fundur verður svo miðvikudaginn 9. desember 2026 á sama stað. Dagskrá þess fundar auglýst síðar.
Kveðja frá undirbúningshópnum:
Þuríður 861-9031;Sigurbjörg 896-7735;
Ingibjörg 849-5273; Páll 896-0981;
Valgerður 862- 9028; Guðrún 899-7783;
Steinar 695-0414; Sigursveinn 888-1485