EN
PO
Search
Close this search box.

Gjaldskrárhækkanir í ó­þökk allra

Deildu 

Hafísinn, sem þjóðskáldið kallaði landsins forna fjanda, kemst ekki í hálfkvisti við þann þráláta og að því er virðist landlæga vanda sem verðbólgan er. Við henni eru til ýmsar aðgerðir, engar góðar eða skemmtilegar og má þar telja aðhald í öllum rekstri og stýrivaxtahækkanir sem hafa dunið á fólki undanfarin ár. Og nú hefur ný ókind bæst í hóp óskemmtilegra aðgerða

Þó jákvætt megi telja að peningastefnunefnd Seðlabankans hafi ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum í 9,25% við síðustu stýrivaxtahækkun verður því ekki neitað að mörg okkar hefðu viljað sjá lækkun stýrivaxta eftir sífelldar hækkanir undanfarna mánuði. Það er þó vart annað hægt en að sýna ákvörðuninni skilning því það er brýnasta mál efnahagsstjórnarinnar að ná niður verðbólgunni. Hún bítur okkur öll en þó mest þau efnaminni í samfélaginu. Ríkisstjórnin hefur lagt höfuðáherslu á að tryggja að ríkisfjármálin og þau verkfæri sem Seðlabankinn hefur vinni saman til að reyna að ná fram því markmiði að koma á efnahagslegum stöðugleika.

Í tekjubandorminum svokallaða sem fylgir fjárlagafrumvarpinu er til að mynda lagt upp með 3,5% hækkun á svonefndum krónutölusköttum í samræmi við forsendur tekjuáætlunar fjárlagafrumvarpsins. Miðað við verðbólgu er þetta í raun skattalækkun sem er eingöngu til þess hugsuð að styðja við hagstjórnina. Hér er hið opinbera að gera sitt.

En óbreyttir stýrivextir og lægri skattheimta mega sín lítils þegar hvert sveitarfélagið á fætur öðru kynnir nú gjaldskrárhækkanir sínar fyrir næsta ár. Og þær hækkanir bíta sannarlega líka. Skólamáltíðir hækka um allt að 33% í sumum sveitarfélögum. Dvöl á frístundaheimilum hækkar og hressingin þar líka. Það verður dýrara að fara í sund, á söfn og í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn. Bókasafnsskírteinin hækka hjá sumum sveitarfélögum, leikskólamáltíðir hjá öðrum.

Af því berast fréttir að til standi að öll stærstu sveitarfélög landsins stefni að gjaldskrárhækkunum og hafa leiðtogar stærstu verkalýðsfélaga landsins lýst af þessu þungum áhyggjum í ljósi komandi kjaraviðræðna. Þessar hækkanir koma langverst niður á þeim sem verst standa og geta vart talist vera í ætt við félagslegt réttlæti.

Til að ná niður verðbólgunni verðum við að róa í sömu átt. Farið er fram á það við almenning að hann sýni aðhald og sparnað og hið opinbera gerir sitt með raunskattalækkunum. Ég vil hvetja sveitarfélögin til að endurskoða sínar gjaldskrárhækkanir og taka í staðinn þátt í mikilvægum mótvægisaðgerðum gegn verðbólgu öllum til heilla.

Grein birtist á Vísi 1.desember

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search