PO
EN

Gjástykki friðlýst gegn orkuvinnslu

Deildu 

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, undirritaði í dag friðlýsingu Gjástykkis í samræmi við lög um verndar- og orkunýtingaráætlun (rammaáætlun). Þetta er fyrsta friðlýsing háhitasvæðis í verndarflokki rammaáætlunar.

Gjástykki þykir einstætt á heimsvísu útfrá jarðfræðilegu sjónarmiði því þar má sjá hvernig land hefur gliðnað með tilheyrandi sigdæld, sprungum og misgengjum. Á svæðinu er að mestu leyti nýbrunnið og lítt gróið hraun sem runnið hefur á nútíma, m.a. frá Kröflueldum 1975-1984. Í rökstuðningi verkefnisstjórnar rammaáætlunar fyrir flokkun svæðisins í verndarflokk og friðlýsingu þess kemur fram að Gjástykki er hluti af eldstöðvakerfi Kröflu sem hefur verndargildi á heimsmælikvarða. Svæðið liggi í nágrenni náttúruminja með hátt verndargildi sem eigi að njóta friðunar. Þannig veiti líka einstakar jarðmyndanir í Gjástykki tækifæri til uppbyggingar þekkingar og fræðslutengdrar ferðaþjónustu.

Með friðlýsingunni er Gjástykki verndað gegn orkuvinnslu yfir 50MW í varmafli en þar voru uppi hugmyndir um jarðvarmavirkjun. Friðlýsingin nær ekki til annarra þátta en orkuvinnslu.

„Friðlýsingin í dag markar tímamót í friðlýsingum á Íslandi því þetta er fyrsta jarðhitasvæðið í rammaáætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða sem friðlýst er gegn orkuvinnslu. Friðlýsingin fylgir eftir ákvörðun Alþingis frá árinu 2013 og ég á von á að friðlýsa fleiri svæði úr rammaáætlun á næstu mánuðum,“ segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra.

Friðlýsingin Gjástykkis gegn orkuvinnslu er hluti af friðlýsingaátaki sem umhverfis- og auðlindaráðherra ýtti úr vör árið 2018. Teymi ráðuneytisins og Umhverfisstofnunar vinnur að friðlýsingum svæða í verndarflokki rammaáætlunar, svæða á náttúruverndaráætlunum og svæða sem hafa verið undir álagi ferðamanna, auk annarra friðlýsinga.

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search