Search
Close this search box.

Gleðilega páska

Deildu 

Í dag er síðasti dagur marsmánaðar – bjartur og fallegur dagur – og af því tilefni langar mig að nefna þrennt.

Bólusetning

Í fyrsta lagi er nú bólusetning við Covid-19 ýmist hafin eða lokið hjá 45 þúsund manns. Þetta er í samræmi við þær áætlanir sem stjórnvöld kynntu í upphafi árs og er ánægjulegt að þær hafa staðist þó að við hefðum öll kosið að afhending bóluefna gengi hraðar. Á næstu þremur mánuðum gera sömu áætlanir ráð fyrir að okkur berist bóluefni fyrir samtals rúmlega 193 þúsund einstaklinga. Gangi það eftir hefur Ísland, fyrir lok júní,fengið bóluefni fyrir samtals tæplega 240.000 einstaklinga frá því að bólusetningar hófust í lok desember, en alls telur hópurinn sem ráðgert er að bólusetja um 280.000 manns. Auðvitað eru allar þessar áætlanir settar fram með öllum hefðbundnum fyrirvörum enda getur margt komið upp á í þessu viðkvæma ferli – en þetta er mikilvæg staðreynd.

Landamæri

Í öðru lagi er fyrsti dagur aprílmánaðar á morgun. Þá verður sú breyting að fólk sem hingað kemur til lands frá eldrauðum löndum þarf að dvelja fimm daga á farsóttarhúsi áður en það fer í seinni skimun. Á sama tíma verður tekin upp skimun fyrir börn – sem ekki hefur tíðkast hingað til. Þá verður tekin upp ein skimun fyrir alla farþega sem eru með bólusetningarvottorð og mótefnavottorð óháð því hvaðan þeir koma en enn sem komið er eru aðeins þau sem hafa slík vottorð sem upprunnin eru innan EES-svæðisins undanskilin tvöfaldri skimun á íslenskum landamærum. Þessar breytingar koma ofan á það kerfi sem hér hefur verið við lýði frá 19. ágúst sem felur í sér tvöfalda skimun með fimm daga sóttkví á milli en raunar var bætt við þær kröfur þann 19. febrúar síðastliðinn með kröfu um neikvætt PCR-próf. Á morgun tekur líka gildi sú regla að allir sem hingað koma til lands þurfa að skrá brottfarardag. Í stuttu máli hefur verið beitt skilvirkum og hörðum aðgerðum á landamærum allt frá síðasta hausti. Við gerum okkur grein fyrir því að með þeirri breytingu sem tekur gildi á morgun erum við enn að herða verulega á aðgerðum á landamærum sem eru vissulegaíþyngjandi fyrir þau sem þurfa að fara yfir landamærin. Við biðjum þó alla um að sýna því skilning að það er okkar mat eftir að hafa ráðfært okkur við sóttvarnalækni og aðra sérfræðinga að þetta séu nauðsynlegar aðgerðir til halda faraldrinum í skefjum og verja þannig daglegt líf og heilsu landsmanna á meðan bólusetningum vindur fram. Við vitum að ekki er hægt að tryggja að veiran berist ekki inn í landið en með öflugum aðgerðum á landamærunum drögum við úr líkunum á því að það gerist og aukum um leið líkurnar á því að ekki þurfi að grípa til harðari aðgerða innanlands.

Staðan innanlands

Í þriðja lagi sýna smittölur dagsins að full þörf er á þeim aðgerðum sem stjórnvöld kynntu í síðustu viku og þeim breytingum sem taka gildi á landamærunum á morgun. Við höfum náð ótrúlegum árangri með því að beita umfangsmikilli skimun, smitrakningu, sóttkví og einangrun. En þegar smit eru að greinast utan sóttkvíar þarf því miður að beita harðari aðgerðum. Kórónuveiran er slægur vágestur og breska afbrigðið er enn meira smitandi en fyrri afbrigði og leggst með meiri þunga á börn og ungt fólk. Það skiptir máli nú sem aldrei fyrr að við gerum öll okkar besta til að kæfa niður veiruna og stöndum saman í baráttunni. Hún hefur hingað til gengið ótrúlega vel og við Íslendingar notið hvað mests frelsis allra Evrópuþjóða í okkar daglega lífi. Bólusetningin mun breyta miklu til góðs og henni vindur fram eins og hér var nefnt í upphafi. En núna skiptir miklu að við tökumst á við þetta eins og við höfum gert hingað til og höfum betur í þeirri baráttu.

Ég vona að þið njótið páskadaganna kæru vinir.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search