Search
Close this search box.

Heilbrigðisstefna til 2030 kynnt á Suðurnesjum í dag 19. ágúst

Deildu 

Heilbrigðisstefna – stefna fyrir íslenska heilbrigðisþjónustu til ársins 2030var samþykkt á Alþingi 3. júní síðastliðinn. Á fundinum verður fjallað um hvað felst í stefnunni, hvaða breytingar hún er líkleg til að hafa í för með sér og hvers vegna hún skiptir svo miklu máli, hvort heldur í þéttbýli eða dreifðari byggðum landsins.

Heilbrigðisstefnan hefur þegar verið kynnt í heilbrigðisumdæmum Norðurlands, Vestfjarða og Suðurlands. Í dag kl. 17 verður fundur í heilbrigðisumdæmi Vesturlands og 22. ágúst í heilbrigðisumdæmi Austurlands.

Dagskrá fundarins 19. ágúst:

  • Svandís Svavarsdóttirheilbrigðisráðherra – Kynning á heilbrigðisstefnu
  • Markús Ingólfur Eiríkssonforstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja – Sýn forstjóra
  • Alma D. Möller landlæknir– Heilbrigðisstefna frá sjónarhóli landlæknis
  • Pallborð: Auk frummælenda taka þátt í pallborðsumræðunum þau Elsa B. Friðfinnsdóttir, skrifstofustjóri í heilbrigðisráðuneytinu og Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar.

Fundarstjóri er Magnús Stefánsson bæjarstjóri Suðurnesjabæjar

 Fundurinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis.

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search