Search
Close this search box.

Heima er best – fyrir öll 

Deildu 

Á nýafstöðnum flokksráðsfundi VG var lýst yfir eindregnum vilja til að efla enn frekar framboð húsnæðis og eftirlit á húsnæðismarkaði. Slíkt er nauðsynlegt til að viðhalda stöðugleika og tryggja framboð sem mætir þörfum almennings hverju sinni. Halda þarf áfram að efla almenna íbúðakerfið, stofna húsnæðisfélag í eigu ríkisins að fordæmi Finna og skoða útvíkkun á almenna íbúðarkerfinu með því að bjóða upp á búseturéttaríbúðir og eignaríbúðir innan kerfisins.

Standa þarf vörð um opinberan húsnæðissjóð sem stofnaður hefur verið að norrænni fyrirmynd til að fjármögnun húsnæðiskerfis sé byggt á jöfnuði og á forsendum almennings. Nauðsynlegt er að koma böndum á háan fjármagns-og vaxtakostnað og tryggja aðgengi að hagkvæmu lánsfé á framkvæmdatíma í slíkum verkefnum. 

Síðastliðin ár hafa stjórnvöld staðið undir um þriðjungi húsnæðisuppbyggingar á landinu og er það vel. Þar munar mestu um almenna íbúðakerfið þar sem 3.500 íbúðir hafa verið fjármagnaðar frá árinu 2016. Tvöföldun stofnframlaga og efling hlutdeildarlánakerfisins hafa skilað sínu en mikilvægt er að efla og útvíkka þau úrræði en frekar enda þörfin mikil og þetta ein mikilvægasta  leiðin til að mæta þeirri þörf. 

Mikilvægt er að klára vinnu við endurskoðun á húsaleigulögum, efla þarf réttindi leigjanda og koma þarf í framkvæmd útfærslum á hugmyndum um leiguþak. Skrá þarf allar leigueignir á leiguskrá til að tryggja nægt opinbert eftirlit með leigumarkaðnum. 

Nið­ur­stöð­um leigu­könn­un­ar Hús­næð­is- og mann­virkja­stofn­un­ar sýnir að samn­ingstaða leigj­enda gagn­vart leigu­söl­um hefur versnað um­tals­vert milli ár­anna 2022 og 2023 um leið og leigu­verð hefur hækk­að og fram­boð á hús­næði dreg­ist sam­an milli ára. Slíka þróun þarf að stöðva svo staða leigjenda á aldrinum 35-44 ára versni ekki frekar og þá sérstaklega barnafjölskyldna.

Ljóst er að þrátt fyrir endurskoðaða mannfjöldaspá Hagstofunnar er ennþá þörf fyrir um 3.500-4.000 íbúðir á ári skv. mati Húsnæðis og mannvirkjastofnunar. Tölur HMS sýna einnig að mikil eignaþjöppun er á húsnæðismarkaði og hefur fjölgun íbúða í eigu lögaðila og einstaklinga sem eiga fleiri en eina íbúð aukist töluvert á síðustu tveimur árum, þar af bættu stórtækir lögaðilar við sig tæplega 800 íbúðum á árinu 2023. Mikilvægt er að koma böndum á þessa samþjöppun og greina á milli einstaklinga sem eiga 1-2 fasteignir til eigin nota og þeirra sem eru í fjárfestingar-og útleigustarfsemi og ættu þar af leiðandi að lúta sömu lögmálum og lögaðilar.  

Við erum lánsöm þjóð að hér velur fólk sér að búa. En um leið þarf að halda í við þá þróun og tryggja að öll geti átt eða leigt sitt heimili. Til þess að svo verði þarf að koma í framkvæmd öflugra eftirliti og utanumhaldi með íslenskum leigumarkaði. Leiguskrá stjórnvalda er komin í gagnið en þar þurfa einungis þeir sem leigja út tvær eða fleiri íbúðir að skrá sig sem tryggir ekki nægjanlegt eftirlit. Leigumarkaður á ekki að vera gróðafyrirtæki þeirra ríku til að verða enn ríkari. Nú er mikilvægt að ríkið stígi inn í þróun sem er bagaleg fyrir íslenskt velferðarsamfélag enda örugg búseta eitt helsta velferðarmál þjóðarinnar og mikilvægur liður í jöfnuði og félagslegu réttlæti, þar sem öruggt húsnæði er eitt af grundvallarmannréttindum okkar allra.

Álfhildur Leifsdóttir, oddviti VG og óháðra í Skagafirði og formaður sveitarstjórnarráðs VG

Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir, oddviti VG í Suðurkjördæmi og stjórnarkona VG

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search