Search
Close this search box.

Hindrum undan­skot

Deildu 

Nú fyrir skemmstu kom fram stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar um innheimtu dómsekta. Skýrslan sýnir svart á hvítu að innheimta sekta, meðal annars vegna skattalagabrota á Íslandi er langt frá því að standast væntingar og er hlutfall innheimtra dómssekta mun lægra hér á landi en tíðkast annars staðar á Norðurlöndum. Þetta er engin nýlunda en stofnunin hefur bent á þetta frá árinu 2009.

Þetta ber að líta alvarlegum augum. Skattar eru undirstaða allra tekna hins opinbera, án þeirra getum við ekki viðhaldið þeim innviðum sem við svo mjög treystum á í daglegu lífi. Innheimta dómssekta er mikilvægur liður í öflugu skattkerfi en sömuleiðis þurfum við að huga að því að skattkerfið í heild sinni sé þannig úr garði gert að það standi undir hlutverki sínu sem tekjuöflunartæki ríkissjóðs. Þar er víða pottur brotinn og lagði ég m.a. fram frumvarp fyrr í vetur sem ætlað er að stemma stigu við ákveðnum annmörkum á reiknuðu endurgjaldi, en þar beini ég sjónum mínum sérstaklega að einstaklingum sem hafa umsjón og umsýslu með fjárfestingum í eigin félögum, félögum sem talist geta óvirk í skattalegu tilliti, að því leyti að þau greiða hvorki tekjuskatt né tryggingagjald en það er mikilvægt að öll starfsemi standi skil af sköttum og skyldum. Þetta er jafnframt liður í umræðunni um ofnotkun á einkahlutafélögum, en um 18.000 slík félög eru skráð í skattagrunnskrá á sama tíma og rannsóknir sýna að 71% rekstraraðila skilar engum tekjuskatti, um 55% rekstraraðila greiða engin laun og um 42% greiða hvorki tekjuskatt né tryggingagjald.

Í mínum huga er ljóst að endurskoða þarf skattaumhverfi hér á landi í mjög stóru samhengi, allt frá skattaundanskotum, lagagloppum eða fullnustu refsinga en úttekt Ríkisendurskoðunar leiðir í ljós að afplánun refsinga er ítrekað tekin út með vararefsingum svo sem samfélagsþjónustu. Það rýrir fælingarmátt refsingarinnar svo um munar að „vinna“ af sér hundraða milljóna skattabrot með samfélagsþjónustu, ég hef því lagt fram fyrirspurn til dómsmálaráðherra þar sem ég óska frekari útlistana á þessu fyrirkomulagi.

Höfundur er þingmaður VG og formaður fjárlaganefndar.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search