Search
Close this search box.

Höfum VG í for­ystu

Deildu 

Óvenjulegu kjörtímabili í skugga heimsfaraldurs og náttúruhamfara er lokið. Með Vinstri græn í forystu hefur tekist að stjórna Íslandi farsællega í átt að jafnara og sterkara samfélagi. Það gerist ekki af sjálfu sér en VG með Katrínu Jakobsdóttur í forsæti hefur tekist það.

Við höfum unnið markvisst að þeim málum sem kjósendur hafa kallað hvað hæst eftir. Öflugt opinbert heilbrigðiskerfi, þrepaskipt skattkerfi í þágu þeirra tekjulægstu, verndun íslenskrar náttúru og takmörk á eignasöfnun einstaklinga á íslensku landi. Það eru ótal mál á réttri leið en til þess að við getum haldið áfram að standa vörð um atvinnulífið og fjölskyldur í okkar fjölbreytta litrófi samfélagsins þurfum við að halda áfram á sömu braut. Ábyrg og traust stefna í rétta átt. Allt tal um að bylta innviðum samfélagsins til þess að ná fram meira réttlæti hljómar ótrúlega vel í orði en erfiðara er að sjá árangur á borði. Ef við byltum þeim stoðum sem við höfum byggt upp, og litið er til sem fyrirmyndar frá öðrum þjóðum, þarf að fylgja rétt reiknuð, fjármögnuð og útfærð áætlun til þess að dæmið gangi upp. Minna hefur farið fyrir slíkum áætlunum í kosningabaráttunni þar sem upphrópanir og loforð um betri heim hljóma í holum trumbuslætti framboðanna. Í fjölflokka lýðræðissamfélagi er deginum ljósara að ein rödd getur aldrei fengið að tóna yfir allar hinar. Að binda sig föst í einstrengingsleg loforð og hafna öðrum sjónarmiðum er ekki gott veganesti í stjórnarmyndunarviðræður. Hvort ætla slíkir flokkar að svíkja kjósendur sína og gefa eftir það sem búið var að lofa eða standa utan samtalsins og koma engu af sínum málum á framfæri?

Vinstrihreyfingin – grænt framboð er róttækur vinstriflokkur sem leggur höfuðáherslu á jöfnuð og sjálfbærni. Stefna Vinstri grænna byggist á fjórum grunnstoðum: umhverfisvernd, kvenfrelsi, alþjóðlegri friðarhyggju og félagslegu réttlæti. Þessar mikilvægu stoðir eru hafðar að leiðarljósi í öllum okkar stefnumálum. Oft er spurt, hvað er þetta “eitthvað annað” sem VG er að tala um í atvinnumálum. Svarið er einfalt, við viljum efla nýsköpun, virkja hugvitið og stefna að grænum lausnum á öllum sviðum atvinnulífs hvort heldur er til sjávar eða sveita. 1/6 af útflutningstekjum þjóðarinnar fellur nú þegar undir þetta “eitthvað annað”. Við viljum byggja upp, skapa fjölbreytt atvinnulíf, þannig að við stöndum keik líka næst þegar ófyrirsjánlegir atburðir gerast og hriktir í stoðum samfélagsins. Til þess þarf að setja X við V í dag.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search