Search
Close this search box.

Höldum áfram að vera til

Deildu 

Við erum að ganga í gegnum ótrúlega tíma þar sem allt er breytingum háð. Samfélög þjóða og daglegt líf fólks um allan heim er litað af þeim áhrifum sem farsóttin COVID-19 og viðbrögð við henni hafa. Samkomubann hefur tekið gildi hérlendis, við þurfum að halda lágmarksfjarlægð milli fólks, skólahald er takmarkað og margir eru í sóttkví eða einangrun.

Allur heimurinn er í sömu sporum og stjórnvöld og vísindafólk standa frammi fyrir risavöxnum áskorunum um allan heim. Hér á Íslandi höfum við kosið að fara að ráðum okkar besta fólks, vísindamanna og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, þ.e. með því að greina, rekja, beita sóttkví og einangrun og nú samkomubanni og takmörkun á skólahaldi. Áhrifin á allt mannlífið eru gríðarleg og við þurfum öll að venjast nýjum og breyttum hversdagsleika, að minnsta kosti í einhvern tíma. Á slíkum tímum er mikilvægt að við hlúum að okkur og andlegu hliðinni, samtímis og við fylgjum fyrirmælum varðandi sóttvarnir.

Á tímum sem þessum er rík ástæða til að týna ekki gleðinni heldur finna leiðir til að sinna því sem við erum þakklát fyrir og gefur lífinu gildi. Þrátt fyrir að reglur hafi verið settar um samkomur og nálægðartakmarkanir þurfum við ekki að hætta að gera það sem okkur finnst skemmtilegt og njóta hversdagsins. Við ættum einmitt að rækta félagsleg samskipti. Það er hægt að gera á ýmsan hátt ef ekki er hægt að hittast, til dæmis með símtölum eða í gegnum Skype, Facetime eða önnur slík forrit.

Þau sem ekki eru með áhættuþætti fyrir alvarlega sýkingu ættu að lifa sem eðlilegustu lífi en ef veikindi gera vart við sig að halda sig heima meðan þau ganga yfir. Þau sem eldri eru eða hafa undirliggjandi sjúkdóma þurfa að gæta sérstakrar varúðar, og því þurfum við að muna að virða þær takmarkanir á umgengni sem aðrir setja sér og sínum.

Það er eðlilegt að finna fyrir kvíða á tímum sem þessum, en þau sem finna fyrir kvíða eða áhyggjum ættu að nýta sér streitulosandi aðferðir sem bjargráð. Það getur til dæmis verið hreyfing, lestur, að hlusta á tónlist eða hlaðvörp eða syngja, skapa tónlist eða list. Líka skiptir máli að vera vel upplýst og lesa réttar upplýsingar. Vefsíðan Covid.is hefur að geyma gagnlegar upplýsingar, svör við algengum spurningum, tölfræði og fleira og vefsíðan er uppfærð nær daglega. Við megum heldur ekki hætta við að leita okkur heilbrigðisþjónustu vegna annarra kvilla eða veikinda en COVID-19, ef þörf er á.

Að lokum langar mig að minna á mikilvægi þess að við förum að fyrirmælum, þvoum okkur um hendur, sprittum og gætum að hreinlæti og verjum okkur og okkar viðkvæmasta fólk. Og pössum upp á hvert annað, tölum saman og verum góð hvert við annað. Við komumst í gegnum þetta saman.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search